Skeiða- og Gnúpverjahreppur auglýsir eftir leigutökum til að nýta lóðina Setrið L240005 innan þjóðlendunnar Flóa- og Skeiðamannaafréttar. Lóðin er 14.620 m2 að stærð. Svæðið er innan friðlands Þjórsárvera.
Umrædd lóð er á þjóðlendu (Flóa- og Skeiðamannaafrétti) skv. úrskurði óbyggðanefndar frá 21. mars 2002 í máli nr. 7/2000. Í ljósi þess þarf leyfi sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps til að nýta land og landsréttindi á svæðinu, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta. Jafnframt þarf samþykki forsætisráðuneytisins, þar sem umrædd nýting á að vara lengur en til eins árs, sbr. 2. mgr. 3. gr. sömu laga.
Það er stefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps að nýting hálendisins til útivistar og ferðaþjónustu verði sjálfbær í sátt við náttúru og umhverfi þannig að yfirbragð hálendisins haldist að mestu ósnortið. Er það í samræmi við rammaskipulag sveitarfélagsins, landsskipulagsstefnu og stefnu forsætisráðuneytis um samþykki fyrir nýtingu lands og landsréttinda
Á svæðinu er nú skáli í eigu Ferðafélags 4x4, eða samtals 150 m2 að stærð með gistiplássi fyrir 67 manns, einnig geymsla og salernishús, en hámarks byggingamagn getur verið allt að 150 m2, 11 m2 salernishús og 14 m2 geymsla. Skv. Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015 og landslagsskipulagsstefnu fellur skálinn undir skilgreiningu sem fjallasel. Á staðnum er einnig fjarskiptamastur.
Við uppbyggingu á svæðinu er mikilvægt að gæta að því að óbyggðaupplifun og náttúrugæði skerðist sem minnst vegna mannvirkja og umferðar. Allt jarðrask sem getur haft í för með sér truflun eða röskun á dýralífi og/eða eyðileggingu á rústamýrarvist og öðrum vistgerðum er óheimilt í friðlandinu. Tekið skal mið af því að fjarlægð milli jaðar- og hálendismiðstöðva og fjallaselja sé jafnan hæfileg dagleið fyrir göngufólk.
Skilmálar sem einkum verður litið til við ákvörðun um leyfisveitingu á umræddu svæði eru eftirfarandi. Ekki skal litið svo á að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra skilmála innbyrðis:
- Þekking á þjóðlendum.
- Umsóknaraðili skal vera óhagnardrifinn eða með óhagnaðardrifið félag.
- Greinargerð skal fylgja umsókn um hvernig viðkomandi hyggst nýta lóð og mannvirki í þeim tilgangi að hafa þar þjónustu fyrir þá sem sækja svæðið heim sem og aðra sem eiga leið um svæðið.
- Frágangur mannvirkja og annarrar starfsemi. Sveitarfélagið mun sérstaklega líta til þess að frágangur verði með þeim hætti að samræmist landslagi vel og stingi ekki í stúf við umhverfið að öðru leyti.
- Að mannvirki séu í samræmi við gildandi deiliskipulag.
- Þekking og reynsla viðkomandi aðila af hálendisferðamennsku og starfsemi afréttarskála.
- Reynsla umsækjanda af gerð og viðhaldi mannvirkja.
- Umsækjandi hafi þekkingu á náttúruvernd og sjálfbærni í ferðamennslu um náttúru Íslands.
Rekstraraðili skal byggja upp/sjá um rekstur þjónustu í og við skálanna og sjá um allt nauðsynlegt og eðlilegt viðhald á hinum leigðu skálum. Rekstraraðili skal vera óhagnaðardrifinn í starfi sínu
Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum sem berast ef það metur umsóknir ekki fullnægjandi og uppfylli ekki markmið sveitarfélagsins fyrir svæðið.
Áhugasamir aðilar vinsamlegast sendið tillögu að notkun á umræddu svæði til sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps, eigi síðar en föstudaginn 2. okt nk. Frekari upplýsingar veitir Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps á netfanginu er sylviakaren@skeidgnup.is