Samráðsfundir með innviðaráðherra

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði.

Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað.

 

Dagskrá

Dagskrá samráðsfunda og skráningarhlekkir.

Dags. Staðsetning (salur) Skráning Fundartími
12. ágúst Akureyri (Múlaberg) Skráning 16:45-18:15
13. ágúst Borgarnes (Hjálmaklettur) Skráning 16:30-18:00
18. ágúst Reykjanesbær (Radisson Park Inn) Skráning 16:30-18:00
19. ágúst Ísafjörður (Edinborgarhúsið) Skráning 16:30-18:00
20. ágúst Selfoss (Hótel Selfoss) Skráning 16:30-18:00
25. ágúst Blönduós (Krúttið) Skráning 16:30-18:00
26. ágúst Egilsstaðir (Hótel Hérað) Skráning 16:30-18:00
28. ágúst Innviðaþing (Hilton Nordica) Skráning allan daginn

 

Reglulegt samráð

Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - irn@irn.is