Samgöngulausnir í Uppsveitunum

Í nýliðnum mánuði var haldinn opinn kynningarfundur um mögulega opnun HOPP leigubílaþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu. Fundurinn var afar vel sóttur og sköpuðust líflegar og jákvæðar umræður um framtíð samgangna á svæðinu.

Á fundinum kynntu Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri HOPP, og Eyþór Máni, sérfræðingur á sviði leigubíla hjá fyrirtækinu, hvernig HOPP getur stutt við samfélagið, ferðaþjónustuna og aukið aðgengi að öruggum og nútímalegum samgöngum í Uppsveitunum.

Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir leigubílaþjónustu á svæðinu aukist verulega samhliða ört vaxandi ferðaþjónustu og fjölbreyttari afþreyingu. Fjöldi ferðamanna dvelur í sumarhúsum, gististöðum og hótelum víðs vegar um Uppsveitirnar og kalla bæði gestir og heimamenn eftir betri samgöngumöguleikum.

„Við finnum greinilega fyrir aukinni eftirspurn eftir leigubílum, sérstaklega í tengslum við viðburði og heimsóknir í Vínstofu Friðheima. Þar sem við erum með vínveitingaleyfi er mikilvægt að þeir gestir sem velja sér að fá sér áfengan drykk hafi örugga leið til og frá staðnum,“ segir Knútur Rafn Ármann, eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima.

Svipaða sögu er að segja frá Laugarási þar sem nýtt og glæsilegt lón ásamt háklassa veitingastað hefur vakið mikla athygli bæði innlendra og erlendra gesta.

„Við fáum reglulega fyrirspurnir frá viðskiptavinum um leigubíla til og frá gististöðum í Uppsveitunum en þjónustan hefur einfaldlega ekki verið til staðar hingað til. Gestir okkar dvelja víða á svæðinu, meðal annars í Reykholti, á Flúðum, og við Geysi, og þörfin fyrir fjölbreyttari samgöngur er orðin mjög skýr,“ segir Bryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugarás Lagoon.

Með tilkomu HOPP skapast spennandi atvinnu- og rekstrartækifæri fyrir einstaklinga á svæðinu sem vilja taka þátt í að byggja upp nýja og mikilvæga þjónustu í Uppsveitunum. Mikilvægt er að þrír eða fleiri leigubílstjórar séu komnir í ferli fyrir réttindin svo við getum farið af stað með markaðsherferð og tilkynnt þann dag sem þjónustuna mun fara í gang.

Nú gefst spennandi tækifæri fyrir heimafólk til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar samgönguþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu. Þeir sem vilja skoða möguleikana á að aka fyrir HOPP og skapa sér auknar tekjur geta sent fyrirspurn á eftirfarandi aðila: