Pistill frá oddvita

Mynd úr nýja eldhúsinu.
Mynd úr nýja eldhúsinu.

Pistill frá oddvita

Tímamót í sögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Í dag, mánudaginn 24. ágúst 2026, eru mikil tímamót í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í dag mæta nemendur til náms í Þjórsárskóla, sem nú í fyrsta sinn er orðinn heildstæður grunnskóli fyrir 1.–10. bekk.

Aðdragandinn hefur verið langur. Á fundi sveitarstjórnar 18. október 2023 var tekin sú ákvörðun að Þjórsárskóli yrði heildstæður grunnskóli fyrir 1.–10. bekk frá og með haustinu 2026. Síðan þá hefur farið fram mikill undirbúningur og umfangsmiklar framkvæmdir til að koma okkur á þann stað sem við erum í dag.

Lyfta var sett í skólahúsið til að tryggja gott aðgengi fyrir alla. Húsbúnaður skólans var endurnýjaður, hljóðvist bætt og fjölmargar breytingar gerðar á innra skipulagi húsnæðisins til að nýta húsnæðið sem best. Smíðastofan var færð úr skólahúsnæðinu til að skapa aukið rými fyrir kennslu og kjallaranum breytt í félagsmiðstöð og FabLab.

Jafnframt var byggt nýtt, 200 fermetra verknámshús með aðstöðu fyrir smíðakennslu, textíl og myndmennt, auk nýrrar kennslustofu fyrir heimilisfræði. Skólalóðin hefur einnig tekið breytingum, meðal annars með nýrri hoppudýnu og aparólu sem hafa vakið mikla ánægju.

Í fyrsta sinn í sögu sveitarfélagsins berum við nú að fullu ábyrgð á einu mikilvægasta lögbundna verkefni sveitarfélaga – rekstri heildstæðs grunnskóla fyrir 1.–10. bekk. Það er stór áfangi og ánægjulegt að sjá þá framtíðarsýn sem mörkuð var fyrir tæpum þremur árum verða að veruleika.

En það eru fleiri áfangar sem við fögnum í dag. Nú er jafnframt tekinn í notkun fyrsti hluti nýrrar íþróttamiðstöðvar í Árnesi. Þar opnar í dag nýtt og fullbúið iðnaðareldhús ásamt matsal. Aðstaðan er öll hin glæsilegasta og búnaður til matargerðar eins og best verður á kosið.

Öryggisúttekt lauk í síðustu viku og starfsleyfi Heilbrigðiseftirlitsins var gefið út síðastliðinn föstudag. Róbert Þór Gunnarsson hefur verið ráðinn kokkur í mötuneytinu og mun í dag elda fyrstu máltíðirnar þar fyrir börn í leik- og grunnskóla ásamt starfsfólki sveitarfélagsins.

Fyrstu vikurnar munu nemendur og starfsfólk ganga á milli Þjórsárskóla og íþróttamiðstöðvarinnar þar sem framkvæmdum við tengibygginguna er ekki að fullu lokið. Aðeins eru þó nokkrar vikur þar til hægt verður að taka tengibygginguna í notkun. Þá verður hægt að ganga innandyra á milli skólans og íþróttamiðstöðvarinnar og skóla-, frístunda- og íþróttastarf verður þannig tengt saman undir einu þaki.

Framkvæmdir við búningsklefa og íþróttasal eru á lokametrunum og gert er ráð fyrir að sú aðstaða verði tekin í notkun í september. Stefnt er að formlegri vígslu nýrrar íþróttamiðstöðvar í Árnesi í október og verður dagsetning vígslunnar auglýst fljótlega.

Það er því sannarlega stór dagur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Verkefni sem unnið hefur verið að um árabil eru nú að verða að veruleika og skapa börnum, starfsfólki og íbúum sveitarfélagsins enn betri aðstöðu til náms, starfs, íþrótta og samveru.

Framtíðin er sannarlega björt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.