- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Þeir sem hafa undir höndum vesti frá fyrri fjallferðum, og eru ekki að fara á fjall í ár, eru vinsamlegast beðnir um að skila þeim sem allra fyrst hreinum og heilum til skrifstofu sveitarfélagsins eða til fjallkóngs.
Einnig er rétt er að benda á að samkvæmt lögum þá er sérhverjum búfjáreiganda skylt að hafa glöggt mark á fé sínu. Lömb skulu eyrnamörkuð fyrir lok 12. viku sumars. Nánar er vísað í meðferð ómerkinga og óskilafjár í kafla VIII laga um afréttamálefni, fjallskil ofl. nr. 6/1986
Afréttamálnefnd Gnúpverja