Opinn samráðsfundur um leikskólalóðina

Opinn samráðsfundur
Opinn samráðsfundur

Þriðjudaginn þann 24. júní, kl. 19:00, í Brautarholti

Starfshópur um leikskólalóðina í Brautarholti býður öllum áhugasömum á opinn samráðsfund um breytingar á leikskólalóðinni. Um er að ræða seinni samráðsfund um verkefnið þar sem nú liggja fyrir drög að teikningum út frá hugmyndum sem fram komu á síðasta skólaári. Á fundinum verður rýnt í fyrirliggjandi teikningar og farið yfir hugmyndir að leiktækjum og fleira.

Hér er hægt að skoða drög að teikningum og tengla á hugmyndir að leiktækjum

Fyrir hönd starfshópsins,

Anna Greta Ólafsdóttir