- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Leikskólinn Leikholt í Brautarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi auglýsir lausar stöður
Sýn okkar í Leikholti er sú að í skólanum fari fram framúrskarandi skólastarf byggt á umhyggju, fagmennsku og öflugu fólki, studd með aðbúnaði og umgjörð sem sómi er að. Leikholt er þriggja deilda leikskóli. Á hverri deild eru um 7 – 16 börn. Á leikskólanum eru um 40 - 50 nemendur frá 1. árs aldri.
Lausar stöður kennara og deildarstjóra:
100% staða deildarstjóra
50-100% staða leikskólakennara
50-100% staða tónlistarkennara og/eða íþróttakennara
Meginverkefni kennara og deildarstjóra eru að: Skapa hvetjandi námsumhverfi og vera faglegur leiðtogi sem leggur sig fram um að skapa umbótamiðað lærdómssamfélag, byggt á lögum um leikskóla og aðalnámskrá. Vinna að og leggja mat á stöðu og framfarir nemenda. Vinna að fagmennsku að farsæld, velferð og menntun nemenda. Vinna markvisst að því að byggja upp jákvæðan skólabrag og öryggt skólaumhverfi, auk þess að hafa frumkvæði að farsælu og uppbyggilegu samstarfi við foreldra.
Hæfniskröfur:
Sæki enginn kennari um, óskum við eftir starfsfólki í stöður leikskólaliða og leiðbeinenda.
Leikskólaliðar og leiðbeinendur
Meginverkefni leikskólaliða og leiðbeinenda eru að: Skapa hvetjandi námsumhverfi og leggja sig fram um að skapa umbótamiðað lærdómssamfélag undir handleiðslu deildarstjóra. Taka þátt í daglegu starfi leikskólans og starfar með börnum í leik og starfi undir stjórn deildarstjóra og framfylgja faglegri stefnu leikskólans.
Hæfniskröfur leikskólaliða og leiðbeinenda:
Umsóknir skal senda á leikholt@leikholt.is, Umsóknarfrestur er til 17. júní 2025.
Ráðið í er stöðurnar frá og með 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða tímabundin störf út skólaárið og áskilur leikskólinn sér rétt til þess að falla frá ráðningum í eftirtalin störf og/eða ráða leiðbeinendur og/eða leikskólaliða til starfa, sæki enginn kennari um. Starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélaga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvarðanir um ráðningar hafa verið teknar.
Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar veitir Anna Greta Ólafsdóttir, leikskólastjóri leikholt@leikholt.is og í síma 486 55 86. Fólk, óháð kyni er hvatt til að sækja um.