Laus staða Yfirlandvarðar á Suður- og Suðvesturlandi

Jökulgil að Fjallabaki
Jökulgil að Fjallabaki

 

Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar á Suður- og Suðvesturlandi með sérstaka áherslu á Friðland að Fjallabaki, Dyrhólaey og Þjórsárdal.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir umdæmisstjóra á svæðinu. Um er að ræða vaktavinnu út á svæðum í tengslum við meginstarfsstöð á Hvolsvelli. Starfshlutfall er 100%.

Allar frekari upplýsingar um verkefni og ábyrgð má finna hér: Laus störf: Yfirlandvörður á Suður- og Suðvesturlandi - Nattúra