Kappræður fyrir kosningar

Haldinn verður sameiginlegur framboðsfundur E-lista og L-lista fyrir sveitarstjórnarkosningar þriðjudaginn 12. maí kl. 20:00 í Árnesi. Þar gefst báðum framboðum tækifæri til að kynna listana og stefnumál sín og íbúum gefst tækifæri til að spyrja framboðin spurninga.

Fyrirkomulag fundarins verður á þann veg að framboðin halda stutta framsögu og síðan býðst gestum tækifæri til þess að spyrja spurninga. Notast verður við SLIDO til þess að spyrja spurninga, en allir gesti fundarins geta sett fram spurningar í gegnum SLIDO sem framboðin fá tækifæri til að svara. Í lok fundar fá svo framboðin tækifæri til að fara með lokaræðu.

Fundurinn verður tekinn upp af Uppsveitakastinu og hægt verður að hlusta á upptökuna, sem fer í loftið daginn eftir fundinn. Fundurinn verður ekki sendur út í beinu streymi, en fyrir þá sem komast ekki og myndu vilja koma ákveðnum spurningum til framboðanna, þá er hægt að senda þær á skeidgnup@skeidgnup.is og munu spurningarnar sem berast verða settar inn í SLIDO kerfið.

Kvetjum alla íbúa til að mæta.