Heiðursfélagar Afréttamálafélags Flóa og Skeiða

Á aðalfundi Afréttamálafélags Flóa og Skeiða, hinn 21. apríl sl., veitti stjórn félagsins heiðursviðurkenningu í fyrsta sinn.

Heiðursfélagi er sá aðili sem hefur lagt sig fram á margvíslegan hátt í þágu félagsins. Hefur af hugsjón brunnið fyrir málefnum afréttarins og innt af hendi hinum ýmsu verkum sem honum fylgja, bæði stórum sem smáum. Þau er mörg handtökin sem fólk hefur unnið í sjálfboðaliðastörfum í gegnum tíðina í kringum göngur og réttir og margvísleg önnur störf tengd félaginu. Öllum þeim aðilum erum við þakklát.

Að þessu sinni hlutu eftirfarandi aðilar heiðursviðurkenningu og eru heiðursfélagar Afréttamálafélags Flóa og Skeiða:

Ólafur Einarsson og Kristín Stefánsdóttir frá Hurðabaki Flóahreppi

Hafliði S. Sveinsson og Ragnhildur Helgadóttir frá Ósabakka Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Aðalsteinn Guðmundsson og Ástrún Sólveig Davíðson frá Húsatóftum Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Við færum heiðursfélögum Afréttamálafélags Flóa og Skeiða hamingjuóskir með þökk fyrir óeigingjarnt starf.