- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Laugardaginn 18. október kl. 10-12:00 verður frístunda- og íþróttahlaðborð í íþróttahúsinu á Laugarvatni, þar sem íþróttafélög og félagasamtök í uppsveitum Árnessýslu sameinast og kynna starfsemi sína.
Viðburðurinn er opinn öllum og hvetjum við fjölskyldur til að mæta á Laugarvatn og kynna sér það fjölbreytta starf sem finna má í Uppsveitunum.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur í lok dagskrár.
Það eru heilsueflandi uppsveitir, í samstarfi við svæðisskrifstofu íþróttahéraða og HSK, sem bjóða í hlaðborðið.