- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur nú lokið við vinnslu upphafsálagningar fasteignagjalda vegna ársins 2026. Öll gjöld vegna vatnsgjalds, lóðarleigu, rotþróar, fráveitu og sorphirðu hafa sömu gjalddaga og fasteignaskattur og fer innheimtu þeirra gjalda samhliða innheimtu fasteignaskatts, þar sem það á við.
Gjalddagar fasteignaskatts, vatnsgjalds, lóðarleigu, fráveitu og sorphirðu eru allt að 10 gjalddagar og koma til greiðslu á tímabilinu febrúar til nóvember.
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir í pósthólfi undir mínum síðum á www.island.is. Ekki verða sendir út greiðsluseðlar nema þess sé sérstaklega óskað en kröfur munu koma inn í heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar.
Allar álagningarforsendur er hægt að sjá á vefsíðu sveitarfélagsins www.skeidgnup.is
Þeir sem óska frekari upplýsinga um álagninguna fyrir árið 2026 er bent á skrifstofu sveitarfélagsins á netfangið skeidgnup@skeidgnup.is
Á heimasíðu sveitarfélagsins er einnig hægt að sjá greinargóða leiðbeiningar um lestur álagningarseðils.