Tafir á umferð og breyttur opnunartími

Fé í réttum
Fé í réttum

Búast má við umferðartöfum v. fjárrekstrar á Þjórsárdalsvegi frá hádegi og fram eftir degi fimmtudaginn 7. september, allt frá Búrfelli og að Ásólfsstöðum.

Föstudaginn 8. september má búast við töfum á Þjórsárdalsvegi frá Ásólfstöðum að Skaftholtsréttum á milli kl. 6.00 til ca. 12.00

Þjórsárdalsvegur verður lokaður á milli Bólstaðar og Sandlækjarholts frá kl. 16 - 18 föstudaginn 8. september vegna fjárrekstrar og búast má við umferðartöfum fyrir ofan og neðan þetta svæði þann dag. 

Búast má við umferðartöfum v. fjárrekstrar á Skeiðavegi, laugardaginn 9. september v. fjárrekstra úr réttum.

Opnunartími á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps verður örlítið breyttur en opið verður á milli 8.00 og 11.00

Gámasvæðið í Árnesi verður lokað laugardaginn 9. september v. rétta.