Nýr deildarstjóri Skólaþjónustu hjá Skóla- og Velferðarþjónustu Árnesþings

Samkomulag við nýjan deildastjóra undirritað
Samkomulag við nýjan deildastjóra undirritað

Stjórn Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. samþykkti á fundi sínum 7. mars síðastliðinn að ráða Gunnlaugu Hartmannsdóttur í starf deildarstjóra skólaþjónustu hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

Gengið hefur verið frá samkomulagi við Gunnlaugu um starfið og mun hún hefja störf á næstu vikum.

Gunnlaug sem er menntuð í uppeldis- og kennslufræðum ásamt náms- og starfsráðgjöf hefur síðustu ár unnið sem skólastjóri Flóaskóla og kemur því inn í skólaþjónustuna með góða yfirsýn á skólastarfið.

Gunnlaug mun starfa samhliða Anný Ingimarsdóttur deildarstjóra velferðarþjónustunnar við mótun á breyttri og betrumbættri þjónustu Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. verður með aðsetur í Laugarási í Bláskógabyggð.