
Skeiða- og Gnúpverjahreppur auglýsir starfs forstöðumanns þjónustustöðvar laust til umsóknar. Verkefni forstöðumanns
- Umsjón og eftirlit með eignum sveitarfélagsins. Þar eru meðtaldar fasteignir,gatna- og veitukerfi auk landssvæða.
- Umsjón framkvæmda
- Umsjón Sorpþjónustu
- Rekstur áhaldahúss
- Umsjón vinnuskóla
- Samskipti við verktaka
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við sveitarstjóra
Menntunar – og hæfniskröfur
- Sveinspróf ásamt reynslu í bygginga- og/eða málmiðngreinum
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Aukin ökuréttindi
- Skipulagsfærni og frumkvæði.
- Hreint sakavottorð
- Þekking á staðháttum er kostur
Undir þjónustumiðstöð Skeiða- og Gnúpverjahrepps heyrir öll þjónusta og umsjón eigna og framkvæmda á vegum sveitarfélagsins. Þar eru meðtaldar allar fasteignir, veitur og landeignir ásamt ýmsu lausafé. Auk þess sorpþjónusta við íbúa og fyrirtæki. Umsjá vinnuskóla tilheyrir þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöðin rekur áhaldahús sem starfrækt er í nýju og vel útbúnu iðnaðarhúsnæði.
Um 100 % starf er að ræða. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur til 6. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri. Í síma 486-6100 og 861-7150. Umsóknum skal skila á netfang sveitarstjóra, kristofer@skeidgnup.is