Búsetumöguleikar
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru góðir búsetumöguleikar.
Sveitarfélagið er í um 85 km fjarlægð frá Reykjavík þ.e. Brautarholtsbyggðin en Árneshverfið um 100 km fjarlægð.
Ef þú vilt flytja í sveitarfélagið er flutningstilkynning hér
07. september 2011 eru laust eitt einbýlishús á Brautarholti til kaups eða jafnvel leigu.
Einnig Jörðin Hraunvellir á Skeiðum og Breiðanes í Gnúpverjahreppi.
Atvinnumöguleikar eru all góðir því sveitin samanstendur af blandaðri starfsemi s.s. mennta- og uppeldisstörfum, ferðaþjónustu, verslun, iðngreinastörfum, hinum hefðbunda landbúnaði, ofl. Búrfellsvirkjun og Sultartangavirkjun eru staðsettar í sveitinni og geta ungmenni búsett hér leitað þangað í vinnu að sumri. Vinnuskóli er starfræktur á sumrin á vegum sveitarfélagsins, fyrir yngsta fólkið sem á lögheimili í sveitarfélaginu.
Þá er auðveldlega hægt að stunda vinnu í nágrannasveitarfélögum þar sem vegalengdir eru ekki það miklar á milli staða t.d. er um 20 km frá Árnesi að Flúðum og um 16 frá Brautarholti þangað. þá eru um 40 km á Sefoss úr Árnesi en um 25 frá Brautarholti.
Tvær sundlaugar eru í sveitarfélaginu:
Neslaug í Árnesi og Skeiðalaug í Brautarholti.
Verslunin Árborg er staðsett í Árnesi.
Kertasmiðja er í Brautarholti
Hér eru upplýsingar um gistingu og aðra þjónustu í sveitarfélaginu
Grunnskóli í Árnesi með 1. - 7. bekk og Leikskóli í Brautarholti eru í sveitarfélaginu og eru um 40 nemendur í grunnskólanum og um 30 leikskólabörn. Nemendur í 8. - 10. bekk stunda nám í Flúðaskóla á Flúðum og næstu framhaldsskólar eru Fjölbrautarskóli Suðurlands á Selfossi og Menntaskólinn að Laugarvatni. Nemendum er ekið daglega á Flúðir og Selfoss en á Laugarvatni búa nemendur á heimavistum skólans. Heilsugæsla og yfirstjórn félagsþjónustu er í Laugarási í Bláskógabyggð en sjúkrahús er á Selfossi, Heilbrigðisstofnun Suðurlands hsu.is
Á Selfossi er flest af þeirri þjónustu sem þarf til daglegs lífs.
Eldri borgarar sveitarfélagsins starfa saman í félagi og hittast reglulega í Bókahúsinu í Brautarholti. Formaður félagsins er Vilmundur Jónsson Skeiðháolti.
Byggingarleyfisgjöld eru skv. gjaldskrá hverju sinni. Gjaldið er þannig uppbyggt að greitt er fastagjald (afgreiðslugjald) kr. 40 þús og að auki rúmmetragjald sem er breytilegt eftir því um hvernig húsnæði er að ræða. Hugsunin er að byggingarleyfisgjald fyrir „meðal“ íbúðarhús sé sambærilegt við meðal sumarhúsið.
Í dag er gjaldið fyrir:
Íbúðarhús kr. 140 pr rúmm.
Sumarhús kr. 340 pr rúmm.
Iðnaðarhús og landbúnaðarbyggingar kr. 50 pr rúmm.
Skrifstofu- og verslunarhúsn oþh kr. 110 pr rúmm.
Ef giskað er á rúmmetratölur fyrir neðangreindar stærðir má áætla að gjöldin séu þannig:
Íbúðarhús 150 ferm, gæti verið ca 550 rúmm, gjald kr. 117 þús
Sumarhús 50 ferm, gæti verið ca 200 rúmm, gjald kr. 108 þús
Iðnaðarhús 400 ferm, gæri verið ca 2000 rúmm, gjald kr. 140 þús
Sækja um byggingaleyfi.
Hitaveita Brautarholts þjónar íbúum í Brautarholti.
Verðskrá frá 01.11.2010.
Vatn um mæli: kr. 51,- á m3 + 2% auðlindaskattur og 7% vsk
Mælagjöld á mánuði:
a) Fyrir mæla allt að 3/4": kr. 849,- + 2% auðlindaskattur og 7% vsk
b) Fyrir mæla 1" - 2" kr. 1.698,- + 2% auðlindaskattur og 7% vsk
Heimæðargjöld miðast við heildar rúmmal húsa og er sem hér segir:
Hús allt að 400 m3 kr. 323.450,- + 7% vsk
Hús 400 m3 - 2000 m2 kr. 323.450.,- og 262,- á hvern m3 þar fram yfir + 7% vsk
Hús stærri en 2000 m3 kr. 742.755,- fyrir 2000 m3 og 222,- á hvern m3 þar fram yfir + 7% vsk
Stofngjald fyrir hvern aðrennslismæli umfram einn á sama inntaki er kr 24.262,- + 7% vsk
Hitaveitufélag Gnúpverja þjónar íbúum í Árneshverfi og mestum hlua Gnúpverjahrepps.
Inntökugjald fyrir heitt vatn frá Hitaveitufélagi Gnúpverja er kr. 250.000,- + 7 % vsk.
Íbúðarhús og sumarhús fast gjald pr. mánuð 1000,- pr mánuð.
Notkun er seld eftir mæli kr. 53,- tonnið +2% auðlindagjald og 7% vsk fyrir íbúðarhús og sumarhús
Atvinnuhúsnæði fast gjald 1000,- pr. mánuð + 2% auðlindagjald og 7% vsk
Notkun seld eftir mæli kr. 18,- + 2% auðlindagjald og 7% vsk
Eyðublað til vinstri á síðu Stjórnkerfið/Eyðublöð merkt Umsókn um hitaveitu.
Gjald fyrir breytingar á heimtaugum, aðrar en um getur í verðskrá, RARIK er samkvæmt skriflegu tilboði RARIK.
Verðskrá um dreifingu og flutning á raforku er hér
Sækja um hjá RARIK
Inntaka rafmagns fer þannig fram að RARIK gerir skriflegt tilboð um tengigjald fyrir heimtaugar stærri en 2800 A.
Sjá vefsíðu RARIK
Myndir:
Mynd 1. Félagsheimið Árnes /stjórnsýsla er staðsett þar.
Mynd 2. Leikskólinn Brautarholti
Mynd 3. Neslaug - Árnesi
Mynd 4. Skeiðalaug - Brautarholti
Mynd 5. Þjórsárskóli - Árnesi




