486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Gjaldskrá fyrir leikskóla

Leikskólagjald í Skeiða- og Gnúpverjahreppi frá 1. janúar 2011

Ein stök morgunhressing       kr. 62,-
Einn stakur hádegisverður    kr. 177,-
Ein stök síðdegishressing       kr. 74,-
Klukkustundargjald                 kr. 118,-
klst.gjald 75%                          kr. 88,-
klst. gjald 50%                         kr. 59,-
9. klukkustundin                     kr. 200,-

Í upphafi leikskólagöngu barns er gerður Dvalarsamningur milli foreldra og leikskólans. Þar koma fram helstu reglur leikskólavistunarinnar, samþykktar af skólanefnd. Foreldrar fylla einnig út Leikskólaumsókn þar sem dvalartími barns kemur fram, foreldrar geta sótt um breytingu á dvalartíma á sérstöku eyðublaði. Þessar upplýsingar liggja til grundvallar útreikningi á leikskólagjöldum ásamt gjaldskrá leikskólans sem skólanefnd ákveður og gefur út hverju sinni.

 

 


© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar