Gjaldskrá fyrir kaldavatnsveitu
Sveitarstjórnarfundur nr. 55 þann 06.10.2009
Gjaldskrá fyrir kaldavatnsveitur Skeiða-og Gnúpverjahrepps.
a. Vatnsgjald er 0,30% af fasteignamati íbúðarhúsa og lóða, þó að hámarki 35 þúsund og að lágmarki 23 þúsund krónur.
b. Vatnsgjald atvinnuhúsnæðis skal vera 0,2% af fasteignamati þó að lágmarki 23 þúsund.
c. Vatnsgjald sumarhúsa skal vera 24 þúsund. frá 1 janúar 2011
d. Heimæðagjald vatnsveitu Skeiða-og Gnúpverjahrepps er kr. 150 þúsund. Innifalið í gjaldinu er tenging við vatnsveitu sveitarfélagsins og efniskostnaður síðustu 25 metra að húsi miðað við 25mm. þvermál rörs. Skilyrt er að starfsmaður sveitarfélagsins sjái um tengingu við vatnsveitu og samþykki frágang lagnar. Gjaldtaka hefst eftir að starfsmaður sveitarfélagsins hefur staðfest tengingu þó ekki sé lokið byggingum sem til standa á eigninni.
e. Í fyrirtækjum og hjá einstaklingum þar sem vatn er notað umfram það sem talist getur eðlilegt, eða þar sem rekstur krefst mikillar vatnsnotkunar, er heimilt auk vatnsgjalds að innheimta sérstakt gjald notkunargjald. Notkunargjald skal notandi að jafnaði greiða samkvæmt notkun vatns mældri í rúmmetrum. Notkunargjald er 23 kr/m3.
Fyrir rennslismæla skal greidd mælaleiga á ári eftir stærð mælis :
15 mm 7.386 kr
20 mm 7.522 kr
25 mm 9.683 kr
32 mm 10.842 kr
50 mm 15.965 kr
80 mm 41.787 kr
f. Gjalddagar vatnsgjalds eru þeir sömu og ákveðnir eru fyrir fasteignagjöld og skal innheimtu hagað á sama hátt og innheimtu fasteignagjalda.
g. Heimæðargjald miðast við byggingarvísitölu og uppfærist á hverju ári. Byggingarvísitala í janúar 2009 - 489,6 stig.
h. Gjaldskrá þessi og reglur eru samdar og samþykktar af sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps skv. 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 gjaldskráin öðlast gildi þegar í stað. Dags. 06.10.2009




