Laus störf og hugmyndabanki
Innsendar hugmyndir um atvinnutækifæri hér í sveitarfélaginu. Skoðið þær!
1. tillaga
Hér er tengill sem vísar á netsíðu (því miður bara á þýsku) þar sem leikskólabörn (!) eru að byggja ofn úr leir og timbri.
http://www.familienhandbuch.de/cmain/f_Programme/a_Aktivitaeten_mit_Kindern/s_818.html
Þetta er sem sagt ekki mjög erfitt eða dýrt. Spurning er hvort ekki væri hægt að byggja þannig ofn þar sem einhverjir úr sveitinni gætu tekið að sér að baka brauð. Við þurftum þá fyrir utan ofninn sem stendur utan dyra, aðstöðu innan dyra til að vinna deigið, pakka osfrv. auðvitað þyrfti til þess ákveðin leyfi frá heilbrigðisstofnum.
Dreifing brauðsins væri kannski til að byrja með í sveitunum í kring en ekkert stendur fyrir því að senda brauðin til Rvk.
Þannig ofn er ekki til á Íslandi þannig að ég veit og Íslendingar eru mikil brauðþjóð. Sólheimar í Grímsnesi hafa opnað bakarí í Vígdísarhúsi og selja öll brauðin sem þeir nota ekki sjálf. Brauðið er lífrænt og mjög bragðgott og hafa þau ekki undan því að baka. Markarðurinn er til. Einnig mætti athuga að selja þannig brauð á bændamörkuðum sem eru nú allstaðar að spretta. Ef til vill væri hægt athuga við Skógrækt ríkisins um hvort möguleiki væri á einhvers konar samstarfi.
2. tillaga
Þetta datt mér í hug þegar ég var að leita að ákveðnu kjötstykki í verslunum á Selfossi sem ég þurfti en fékk ekki og varð svo að leita til Krás á Selfossi til að fá. Væri ekki grundvöllur fyrir því að opna kjötvinnslu hér í sveitinni og nýta þar með öll hráefni sem til eru hér. Lömb, naut og svín eru til í sveitinni. Auðvitað þarf að slátra dýrunum á Selfossi til að hafa þetta löglegt með stimpli. Áætlað væri að framleiða tegundir sem ekki er framleitt hjá SS og öðrum kjötvinnslufyrirtækjum úr kjöti úr sveitinni. Það þýðir víst lítið að fara í samkeppni við SS og framleiða venjulegar pylsur og salami. Ég er frekar að hugsa um sérvörur og þá má jafnvel leita út fyrir landssteinana með uppskriftir. Þýskaland og Norðurlöndin öll eru með mjög góða áleggstegundir sem við fáum ekki hér. Og ábyggilega önnur lönd líka, ég bara þekki ekki nóg vel til með það. En hráefnið er til staðar! Söludreifingin ætti þá líka að stefna í átt að bændamörkuðum og sérvörubúðum og ekki keppa við Bónus eða Krónuna. Framleiða í frekar litlu mæli fyrst til að geta selt aðeins dýrara því varan er einstök. Fyrir þannig kjötvinnslu þyrftum við líklegast lærðan kjötiðnaðarmann en líka aðstoðamenn sem gætu komið úr sveitinni. Kannski er líka kjötiðnaðarmaður til í sveitinni? Dreifingin gæti þá samnýst bakaríinu!




