Gjaldskrá fyrir hundahald
21. fundur var haldinn í hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps þriðjudaginn 4. sept. kl.10:30 í Árnesi.
Mættir voru Gunnar Örn Marteinsson oddviti, Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Tryggvi Steinarsson, Björgvin Skafti Bjarnason
sem ritaði fundargerð og Sigurður Jónsson. Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi uppsveita mætti á fund kl: 13.00
Gjaldskrá fyrir hundahald.
1.gr.
Gjald fyrir hvern hund skal vera 1000.kr á árinu 2007. Gjald skal greitt við skráningu hundsins.
2. gr.
Kostnaður vegna föngunar og vörslu hunda, sem teknir eru lausir ss. útkallskostnaður , bifreiðakostnaður, búrleiga og auglýsingar, skal
greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds. Föngunargjald, varsla og auglýsingargjald er 15.000 kr.- Síðan leggst
sólarhringsgjald á kr. 1.000 – vegna dvalar við geymslu viðkomandi hunds, inni í því er fæði og búrleiga. Ef hundur er handsamaður fyrir
lausagang oftar en þrisvar sinnum sama ár, þá á hundaeigandi eða umráðamaður hunds yfir höfði sér leyfissviftingu.
3.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps þ. 4.sept 2007 samkvæmt ákvæðum 25.gr laga
nr.7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, gildir fyrir árið 2007, og tekur gildi eftir staðfestingu heilbrigðisnefndar.
Árnesi 4. september 2007.
Sveitarstjórn samþykkir gjaldskrána og veitir frest til áramóta að skrá hunda.




