Hundahald
S A M Þ Y K K T
um hundahald í Skeiða-og Gnúpverjahreppi.
1.gr.
Hundahald í Skeiða-og Gnúpverjahreppi sætir þeim takmörkunum sem fram koma í samþykkyt þessari.
2.gr.
Hundahald í Skeiða-og Gnúpverjahreppi er háð eftirfarandi skilyrðum:
- Eigandi hunds skal láta örmerkja hund sinn hjá dýralækni skrá hann á skrifstofu sveitarfélagsins og fá þar afhenta plötu sem alltaf skal vera um háls hundsins. Fyrir þetta skal hann greiða leyfisgjald samkvæmt gjaldskrá sem sveitarstjórn setur í samræmi við 25.gr.laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr.7/1998
- Skylt er hundaeiganda að hafa hund sinn ábyrgðatryggðan hjá viðurkenndu tryggingafélagi.Fyrir 1.maí ár hvert skal leggja fram staðfestingu þess að tryggingin sé í fullu gildi.
- Hundurinn skal aldrei ganga laus á almannafæri,heldur vera í fylgd með einhverjum sem hefur fullt vald yfir honum. Eigi er leyfilegt að fara með hund inn í skólahús,opinberar byggingar,matvöruverslanir eða aðra staði þer sem matvæli eru höfð um hönd.Á almannafæri (skipulagt þéttbýli) er leyfishafa skylt að fjarlægja saur eftir hund/a sína á tryggilegan hátt.
- Hundaeiganda ber að öðru leyti að fara að lögum og reglum er hundahald varðar s.s. reglur um árlega hreinsun hunda og reglugerð nr.1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni. Fyrir 1.maí ár hvert skal leggja fram staðfestingu á því að hundur hafi verið hreinsaður en ef það bregst getur sveitarstjórn látið hreinsa hundinn á kostnað eigandans.
- Hundaeigandi ber ábyrgð á því að hundur hans raski ekki ró íbúa hreppsins og sé hvorki þeim né þeim sem um sveitarfélagið fara til óþæginda,með tilliti til hávaða,óþrifnaðar,eyðileggingar verðmæta eða slysahættu.
- .Hundar á lögbýlum mega ganga frjálsir á landareign eigenda sinna. Að öðru leyti skulu slíkir hundar háðir ákvæðum þessarar samþykktar.
3.gr.
Við brot á skilyrðum skv. 2.gr. skal fjarlægja viðkomandi hund. Eigandi hundsins fær þá,ef um minniháttar brot að ræða tækifæri til að leysa út hundinn gegn greiðslu þess kostnaðar,sem á hann er fallinn sbr.gjaldskrá sveitarfélagsins. Sé um að ræða alvarleg eða ítrekuð brot er viðkomandi hundur tekinn ít af skrá og er ekki lengur heimild fyrir eiganda hans að halda hund í sveitarfélaginu.Sé hunds ekki vitjað innan sjö daga frá því að eiganda var tilkynnt um handssömun hans má aflífa hundinn,enda sé eiganda gert ljóst hvað vanræksla á að vitja ekki um hundinn getur haft í för með sér. Yfirvöldum sveitarfélagsins er aldrei skylt að geyma skráðan hund lengur en tíu daga frá handsömun og er heimilt að láta aflífa hundinn að þeim tíma liðnum.Allur kostnaður við hundinn greiðist af eiganda.
Hættulega og óleyfilega hunda og þá hunda sem ganga lausir á almannafæri skal handtaka og færa í geymslu.Heimilt er að láta lóga hættulegum hundum þegar í stað sbr.þó 8.grein rgl. nr.1077/2004.
Handsömun á óskráðum hundi skal auglýst. Sé hunds ekki vitjað innan 10 daga má láta aflífa hann. Komi síðar í ljós hver átti hundinn þá má krefja hann um greiðslu kostnaðar.
Sveitarstjórn er hvenær sem er heimilt að afturkalla skráningu á einstökum hundum eða öllum hundum telji hún þess þörf.
4.gr.
Samþykkt þessi gildir einnig fyrir eigendur sumarhúsa og frístundabyggðar í sveitarfélaginu.
5.gr.
Sveitarfélaginu er heimilt að innheimta gjald vegna kostnaðar sem hlýst af samþykkt þessari.Gjaldið skal ákveðið í gjaldskrá sem sveitarstjórn setur að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar,skv. ákvæðum 25.greinar laga nr.7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir,msbr.Gjöld mega ekki vera hærri sen sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits.Gjaldið skal í fyrsta sinn greitt við skráningu hundsins og síðan árlega fyrir 1.júní.Í gjaldskrá skal einnig akveðið handsömunar-og geymslugjald sbr.3.grein.Sveitarstjórn skal láta birta gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda.
6.gr.
Brota gegn samþykkt þessari eða reglum settum samkvæmt henni varða sektum,nema þyngri refsins liggi við að lögum.Mál út af rotum á samþykkt þessari skal fara að hætti opinberra mála og í samræmi við VI. og VII.kafla laga nr.7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
7.gr.
Framangreind samþykkt sveitarfélagsins Skeiða-og Gnúpverjahrepps staðfestist hér með skv. 25.grein laga nr.7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir,msbr.til þess að öðlast gildi við birtingu.




