486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Afsláttur á fasteignaskatti og tekjuviðmiðun

Samþykkt um lækkun, niðurfellingu eða styrki vegna fasteignaskatts
í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

1. grein
Samkvæmt lögum nr. 4/1995 með síðari breytingum,  um tekjustofna sveitarfélaga leggja sveitarfélög á fasteignaskatt.  Í sömu lögum og reglugerð nr. 1160/2005 er sveitarstjórnum veitt heimild til að lækka, fella niður eða veita styrki til greiðslu fasteignaskatta.  Skylt er sveitarstjórnum að setja reglur um beitingu heimildanna.  Reglur um lækkun, niðurfellingu eða styrki vegna fasteignaskatts í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru birtar með samþykkt þessari sbr. 7.gr. reglugerðar nr. 1160/2005.   

2. grein
Starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni
Forsvarsmenn menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafélaga og mannúðarfélaga
geta sótt um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum félaganna.
Leggja skal inn skriflega umsókn til hreppsskrifstofu og í henni gerð grein fyrir
starfseminni.  Hreppsnefnd tekur ákvörðun um styrkveitingu á grundvelli þess að um
sé að ræða sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og
mannúðarstörf sem ekki eru rekin í ágóðaskyni.

3. grein
Tekjulitlir elli- og örorkulífeyrisþegar
Þeir íbúar sem eru 67 ára og eldri geta sótt um afslátt af fasteignaskatti þeirrar íbúðar sem þeir eiga og búa í og ekki er nýtt af öðrum. 
Þeir íbúar sem metnir eru 75% öryrkjar eða meira geta sótt um afslátt af fasteignaskatti þeirrar íbúðar sem þeir búa í og ekki er nýtt af öðrum. 
Leggja skal inn skriflega umsókn til hreppsskrifstofu ásamt staðfestu skattframtali næstliðins árs.  Umsókn öryrkja skal enn fremur fylgja vottorð um örorkumat.  Við ákvörðun afsláttar skal einnig tekið tillit til tekna maka.   Umsóknir eru afgreiddar af sveitarstjóra á grundvelli tekjuviðmiðunar sem hreppsnefnd ákveður ár hvert. 

4. grein
Bújarðir og útihús
Eigendur bújarða eða útihúsa geta sótt um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts af bújörðum á meðan þær eru nýttar til búskapar og af útihúsum ef þau eru einungis nýtt að hluta eða standa ónotuð.  Leggja skal inn skriflega umsókn til hreppsskrifstofu ásamt staðfestu skattframtali næstliðins árs.  Hreppsnefnd metur umsóknir og ákveður lækkun eða niðurfellingu í hvert sinn.  Við mat á umsóknum er tekið tillit til þess hvort þróun fasteignamats á viðkomandi jörðum er verulega íþyngjandi fyrir umsækjanda.  Einnig hvort umsækjandi er tekjulítill elli- eða örorkulífeyrisþegi. 

5. grein
Friðuð hús
Eigendur friðaðra húsa geta sótt um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts af friðuðum húsum ef þeir hafa staðið að endurbótum eða endurbyggingu þeirra.  Umsóknum skal skilað til hreppsskrifstofu eigi síðar en 30 dögum eftir fyrsta gjalddaga ár hvert. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um  endurbyggingu eða endurbætur hússins. Hreppsnefnd metur umsóknir og ákveður lækkun eða niðurfellingu í hvert sinn.  Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fram hafi farið umtalsverðar endurbætur á húsinu.  Þannig megi líta á styrk eða niðurfellingu sem framlag til endurbóta.

Samþykkt þessi var gerð á fundi hreppsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps 7. febrúar 2006 og tekur þegar gildi.


Ingunn Guðmundsdóttir
Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar