Reglur og gjaldskrár 2012
Gjaldskrá Skeiða-og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2012
Vatnsgjald
Gjaldskrá vatnsveitu fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði, verður óbreytt frá þeirri gjaldskrá sem í gildi var fyrir árið 2011.
Seyrulosunargjald
Árlegt gjald fyrir losun á seyru samkvæmt samþykkt nr. 149/2004 um hreinsun fráveituvatns og reglubundna losun, vinnslu eða förgun seyru verður 6.400.- kr. á rotþró.
Sorpgjöld
Sorpgjöld er lögð á samkvæmt samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 8. des 2005.
Samþykktin var staðfest á 84 fundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands þann 14. mars 2006, og staðfest af Umhverfisráðuneyti þann 5. janúar 2007.
Sorpgjöld árið 2012 verða eftirfarandi:
Sorphirðugjald 240 L 11.550.- kr.
Sorphirðugjald 660 L 34.000.- kr.
Sorphirðugjald 1.100 L 56.250.- kr.
Sorpeyðingargjald íbúðarhús 11.700.- kr.
Sorpeyðingargjald sumarhús 8.750.- kr.
Sorpeyðingargjald atvinnu 32.000.- kr.
Holræsagjald
Holræsagjald á þeim stöðum þar sem sveitarfélagið er með holræsakerfi, gjaldið nemur 0.15% af fasteignamati.
Lóðaleigugjöld
Lóðaleigugjöld innheimtast eftir lóðaleigusamningum.
Gjaldskrá grunnskóla frá 1. janúar 2012
Skólamötuneytisgjöld
Morgunhressing kr. 69,-
Hádegisverður kr. 255,-
Skólavistun
Skólavistun klst. kr. 210,-
Aukavistun klst. kr. 210,-
Náðarkorter 15 mín. Kr. 500,-
Gjaldskrá leikskóla frá 1. janúar 2012
Ein stök morgunhressing kr. 64,-
Einn stakur hádegisverður kr. 184,-
Ein stök síðdegishressing kr. 77,-
Klukkustundargjald kr. 123,-
klst.gjald 75% kr. 92,-
klst. gjald 50% kr. 61,-
Klukkustundargjald á öðrum tímum en frá kl.08 til kl.16:00 kr. 250,-
Gjald fyrir aukatíma, hverjar byrjaðar 15.mínútur kr. 500,-
Tómstundastyrkur fyrir árið 2012.
Sveitarstjórn Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára til og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50.000.- kr. á árinu 2012 til að stunda íþrótta, æskulýðs eða menningarstarf.
Með umsókn þarf að fylgja frumrit kvittunar um greiðslu frá aðila sem uppfyllir skilyrði að um viðurkennda starfsemi sé að ræða og fagaðilar sjái um þjálfun og /eða menntun.
Afsláttur af fasteignaskatti fer eftir samþykktum sveitarstjórnar frá 7. febrúar 2006.
Samkv. 3. gr. þeirrar samþykktar geta þeir sem eru eldri en 67 ára, og þeir sem eru 75% öryrkjar eða meira, sótt um afslátt á fasteingnagjöldum þeirrar íbúðar sem þeir búa í og ekki er nýtt af öðrum tekjuviðmiðið er í lið 7.
Leggja skal inn skriflega umsókn til hreppsskrifstofu ásamt staðfestu skattframtali næstliðins árs.
Umsókn öryrkja skal ennfremur fylgja vottorð um örorkumat. Við ákvörðun afsláttar skal einnig tekið tillit til tekna maka.
Umsóknir eru afgreiddar af sveitarstjóra á grundvelli tekjuviðmiðunara sem hreppsnefnd ákveður hvert ár.
Tekjuviðmiðun vegna afsláttar frá fasteignaskatti 2012
Tekjur einstaklinga Afsláttur
Frá 0 kr. til 1.959.060 kr. 100%
Frá 1.959.061 kr. til 2.242.493 kr. 80%
Frá 2.242.494 kr. til 2.374.405 kr. 60%
Frá 2.374.406 kr. til 2.514.075 kr. 40%
Frá 2.514.076 kr. til 2.661.962 kr. 20%
Frá 2.661.963 kr. og hærri 0%
Tekjur hjóna Afsláttur
Frá 0 kr. til 2.984.116 kr. 100%
Frá 2.984.117 kr. til 3.252.864 kr. 80%
Frá 3.252.865 kr. til 3.520.143 kr. 60%
Frá 3.520.144 kr. til 3.788.889 kr. 40%
Frá 3.788.890 kr. til 4.059.096 kr. 20%
Frá 4.059.097 kr. og hærri 0%




