Sveitarstjórn
Skeiða- og Gnúpverjahreppi er stjórnað af fimm manna hreppsnefnd sem valin er í kosningum á fjögurra ára fresti. Meginhlutverk hennar er að sinna allri opinberri þjónustu, svo sem menntunar- og uppeldismálum, bygginga - og skipulagsmálum, atvinnu og umhverfismálum.
Eftir sveitarstjórnarkosningar 2010 eiga þrír listar nú menn í hreppsnefnd.
Þeir eru:
• K-listi Farsælir framfarasinnar - með 3 menn kjörna
• N-listi Nýir tímar nýtt afl - með 1 mann kjörinn
• E-listi Eining - með 1 mann kjörinn
Sveitarstjórn 2010 - 2014
Gunnar Örn Marteinsson Steinsholti II K lista
oddviti@skeidgnup.is
Harpa Dís Harðardóttir Björnskoti K lista
harpadis@skeidgnup.is
Jón Vilmundarson Skeiðháholti I K lista
jon@skeidgnup.is
Oddur Guðni Bjarnason Stöðulfelli N lista
oddur@skeidgnup.is
Björgvin Skafti Bjarnason Brautarholti E lista
skafti@skeidgnup.is
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
I. KAFLI
Um skipan hreppsnefndar og verkefni hennar.
1. gr.
Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps er skipuð fimm hreppsnefndarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna
nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
2. gr.
Starfstímabil hreppsnefndar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.
3. gr.
Hreppsnefnd fer með stjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer
hreppsnefndin með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum hreppsins að svo miklu leyti sem hreppsnefnd hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.
4. gr.
Hreppsnefnd skal gæta hagsmuna Skeiða- og Gnúpverjahrepps og vera í fyrirsvari fyrir sveitarfélagið og vinna að sameiginlegum velferðarmálum
íbúa þess.
5. gr.
Hreppsnefnd annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur hreppsnefnd ákveðið að Skeiða-
og Gnúpverjahreppur taki að sér verkefni sem varðar íbúa sveitarfélagsins sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
6. gr.
Meðal verkefna hreppsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps er:
1. Að kjósa oddvita og varaoddvita hreppsnefndar, nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að
yfirfara ársreikninga hreppsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
3. Að stjórna fjármálum hreppsins, stofnana hans og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
4. Að ákveða stjórnkerfi hreppsins og ráða sveitarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
II. KAFLI
Um fundarsköp hreppsnefndar.
7. gr.
Hreppsnefnd heldur reglulega fundi einu sinni í mánuði að jafnaði fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Heimilt er að fella niður fundi í hreppsnefnd
í allt að tvo mánuði að sumarlagi.
Aukafundi skal halda í hreppsnefnd eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og sveitarstjóra og skylt er að halda aukafund í hreppsnefnd
ef a.m.k. þriðjungur hreppsnefndarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
8. gr.
Sá kjörinn hreppsnefndarfulltrúi sem á að baki lengstu setu í hreppsnefnd kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum
eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.
Hafi tveir eða fleiri hreppsnefndarfulltrúar átt jafnlengi setu í hreppsnefnd fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.
9. gr.
Sveitarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar hreppsnefndarfundi í samráði við oddvita og ákveður jafnframt fundarstað hafi hreppsnefndin ekki gert það.
10. gr.
Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær hreppsnefndarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar
hreppsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.
Í upphafi kjörtímabils hreppsnefndar tekur hreppsnefndin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun
kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.
11. gr.
Sveitarstjóri semur dagskrá hreppsnefndarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá hreppsnefndarfundar skal taka:
1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsins, svo og ráðningar
framkvæmdastjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
2. Fundargerðir byggðarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
3. Önnur mál sem falla undir verksvið hreppsnefndar og sveitarstjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver hreppsnefndarmaður
óskar að tekin verði á dagskrá. Hreppsnefndarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá hreppsnefndarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra
skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá hreppsnefndarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að hreppsnefndarmenn
geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta hreppsnefndarfundar.
12. gr.
Sveitarstjóri skal hafa sent hreppsnefndarmönnum fundarboð hreppsnefndarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist
þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund.
13. gr.
Dagskrá hreppsnefndarfundar skal vera aðgengileg íbúum hreppsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu hreppsins,
skrifstofu hreppsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem hreppsnefndin ákveður.
14. gr.
Sveitarstjóri skal senda hreppsnefndarmönnum fundarboð aukafundar í hreppsnefnd þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.
15. gr.
Sá hreppsnefndarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar hreppsnefndar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn.
Oddviti hreppsnefndar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í hreppsnefndinni skal hann
víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.
Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í hreppsnefndinni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal
kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri hreppsnefndarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja
tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.
Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita hreppsnefndar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaoddvitar skulu kjörnir til jafnlangs
tíma og oddviti.
Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til félagsmálaráðuneytisins þegar að því loknu.
Sé enginn oddvita á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema hreppsnefnd ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.
16. gr.
Hreppsnefnd getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi hreppsnefndarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram.
Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í hreppsnefndinni.
17. gr.
Hreppsnefndarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.
Hreppsnefndarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgengi fatlaðs fólks.
Hreppsnefnd getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm
einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur hreppsnefndin
ákveðið að hreppsnefndarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir
luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í hreppsnefnd.
Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í hreppsnefnd.
18. gr.
Hreppsnefndarfundur er lögmætur ef meira en helmingur hreppsnefndarmanna er mættur á fundinn og getur hreppsnefndin enga bindandi ályktun
gert nema hreppsnefndarfundur sé lögmætur.
19. gr.
Oddviti hreppsnefndar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar
dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók hreppsnefndarinnar og að allar ályktanir og
samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.
Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar hreppsnefndar. Oddviti sér um að allt fari skipulega
og löglega fram á hreppsnefndarfundum og er hreppsnefndarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu.
Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á hreppsnefndarfundum.
20. gr.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í hreppsnefnd í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða hreppsnefnd ákveði annað.
Heimilt er að taka til meðferðar á hreppsnefndarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra hreppsnefndarmanna samþykkja slíkt afbrigði.
21. gr.
Hreppsnefnd afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
1. Fjárhagsáætlanir hreppsins, stofnana hans og fyrirtækja.
2. Ársreikninga hreppsins, stofnana hans og fyrirtækja.
3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr.
Hreppsnefndarmanni er skylt að sækja alla hreppsnefndarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.
Sé hreppsnefndarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra sem boðar þá varamann hans
á fund. Varamenn taka sæti í hreppsnefnd í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þar sem hreppsnefnd hefur verið kjörin í bundinni hlutfallskosningu
taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram
af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver
aðalmanna hefur forfallast.
Sveitarstjóri skal sitja fundi hreppsnefndar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í hreppsnefnd.
Hreppsnefnd getur heimilað einstaklingi utan hreppsnefndar að taka til máls á hreppsnefndarfundi.
23. gr.
Hreppsnefndarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að
almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.
Hreppsnefndarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum hreppsnefndarinnar eða ákveða þóknun fyrir
slík störf.
Hreppsnefndarmenn sem jafnframt eru starfsmenn hreppsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórnina
eru alltaf vanhæfir þegar hreppsnefndin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar hreppsnefndin fjallar um og afgreiðir
fjárhagsáætlanir og ársreikninga hreppsins.
Hreppsnefndarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli hreppsnefndar á því. Hreppsnefndarmanni er heimilt við meðferð
máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Hreppsnefnd sker umræðulaust úr um hvort mál er
svo vaxið að einhver hreppsnefndarmanna sé vanhæfur. Hreppsnefndarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Hreppsnefndarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal hreppsnefndar við meðferð og afgreiðslu þess.
24. gr.
Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á hreppsnefndarfundum. Hreppsnefndarmaður sem taka vill til máls skal óska
heimildar oddvita. Að jafnaði skulu hreppsnefndarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu
ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða hreppsnefndarmann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri.
Hafi tveir eða fleiri hreppsnefndarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala. Hreppsnefndarmaður skal flytja mál
sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.
25. gr.
Hreppsnefndarmaður skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal
hreppsnefndarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.
Hreppsnefndarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó hreppsnefndarmanni að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli
eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna)
má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.
Ekki má hreppsnefndarmaður lesa upp prentað mál við umræður í hreppsnefnd nema með leyfi oddvita.
26. gr.
Beri hreppsnefndarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við hreppsnefnd að hreppsnefndarmaður sem víttur
hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist hreppsnefndarmaður
ekki úrskurði oddvita eða hreppsnefndar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.
27. gr.
Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers hreppsnefndarmanns verði takmarkaður,
umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver hreppsnefndarmaður getur og borið fram slíkar
tillögur. Hreppsnefnd afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur
en tvær klukkustundir ef einhver hreppsnefndarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
28. gr.
Hreppsnefndarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu
er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.
29. gr.
Mál er afgreitt í hreppsnefnd með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá hreppsnefnd eða vísa því til afgreiðslu nefndar,
ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem hreppsnefnd ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Hreppsnefnd
er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.
30. gr.
Atkvæðagreiðsla á hreppsnefndarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá hreppsnefndarmenn sem samþykkja mál að
rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt
án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur hreppsnefndarmanna
óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá hreppsnefndarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða
hreppsnefndarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar hreppsnefndarmaður,
þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík
afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef hreppsnefndarmaður óskar og hreppsnefnd samþykkir.
Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
31. gr.
Á hreppsnefndarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.
Kosningar sem fara fram í hreppsnefnd skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna
nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.
32. gr.
Hreppsnefnd getur ráðið sérstakan fundarritara utan hreppsnefndar til að annast ritun fundargerða í gerðabók hreppsnefndar. Í fundargerð
skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og
meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram
fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð hreppsnefndar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.
Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema hreppsnefnd ákveði annað.
Hreppsnefnd getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók hreppsnefndarinnar númer fundar, hvar
og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða.
Viðstaddir hreppsnefndarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og
hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem
blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.
Hreppsnefndarmaður sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.
Hreppsnefnd getur ákveðið að umræður á hreppsnefndarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal
hreppsnefnd setja um það nánari reglur.
III. KAFLI
Um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna.
33. gr.
Hreppsnefndarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi hreppsnefndar nema lögmæt forföll hamli.
Aðal- og varamönnum í hreppsnefnd er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum hreppsins. Hver hreppsnefndarmaður er skyldur til
að taka að sér þau störf sem hreppsnefnd felur honum og varða verkefni hreppsnefndarinnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá sem
verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.
34. gr.
Hreppsnefndarmanni ber að gegna störfum sínum í hreppsnefnd af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna hreppsins, en í störfum sínum er
hreppsnefndarmaður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.
35. gr.
Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum hreppsnefndar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.
Hreppsnefndarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem hreppsnefnd er að lögum skylt
að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef
minna en helmingur hreppsnefndarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.
Hreppsnefndarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá hreppsnefndarfundar enda tilkynni hann
það framkvæmdastjóra sveitarfélags skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
36. gr.
Hreppsnefndarmaður á aðgang að bókum og skjölum hreppsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum
afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.
37. gr.
Hreppsnefndarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í hreppsnefnd.
38. gr.
Hreppsnefndarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða
almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að hreppsnefndarmaður lætur af þeim störfum.
39. gr.
Nú telur hreppsnefndarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í hreppsnefndinni án óhæfilegs álags og getur hreppsnefndin þá létt af
honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr.
sveitarstjórnarlaga.
Missi fulltrúi í hreppsnefnd kjörgengi skal hann víkja úr hreppsnefndinni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
Nú er hreppsnefndarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal hreppsnefndin
þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
40. gr.
Hreppsnefndarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í hreppsnefnd. Ef um langan veg er að fara milli heimilis
hreppsnefndarmanns og fundarstaðar hreppsnefndar getur hreppsnefndin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna
ferðakostnaðar. Takist hreppsnefndarmaður á hendur ferð á vegum hreppsins samkvæmt ákvörðun hreppsnefndarinnar á hann rétt á
greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Hreppsnefnd setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
41. gr.
Haga skal fundum hreppsnefndar þannig að hreppsnefndarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.
42. gr.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna gilda einnig um varamenn sem taka sæti í hreppsnefndinni.
IV. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
43. gr.
Hreppsnefnd kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera
leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver hreppsnefndarmaður óskar þess.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana hreppsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.
44. gr.
Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða hreppsnefndin ákveði annað.
Sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af hreppsnefnd.
Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.
45. gr.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans
taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema hreppsnefndin ákveði að kjósa aðalmann að nýju.
Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig
tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
46. gr.
Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn hreppsins. Enn fremur getur nefnd boðið
aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
47. gr.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum hreppsins
eftir því sem við á.
48. gr.
Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum hreppsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum hreppsnefndar.
Hreppsnefnd getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið hreppsnefnd til ákvörðunar.
49. gr.
Nefndir, ráð og stjórnir hreppsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan
fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða hreppsnefndarinnar, sbr. 32. gr.
50. gr.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna hreppsins skulu teknar á dagskrá hreppsnefndar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum
nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar hreppsnefndarinnar eru fundargerðirnar
lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar hreppsnefndarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir.
Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir hreppsnefndina.
51. gr.
Breytingartillögur lagðar til á 4., 6., 7., 18. og 20. lið greinarinnar á 02. fundi sveitarstjórnar þann 30. júní 2010.
Breytingartillögur staðfestar af ráðuneyti þann 06. október 2010.
51. gr. er því staðfest svohljóðandi:
Hreppsnefnd kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:
A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:
1. Oddvitakjör. Oddviti og varaoddviti skv. 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
2. Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Þrír fulltrúar og þrír til vara samkvæmt samþykktum samtakanna.
B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða/og öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:
1. Aðalfundur Afréttamálafélags Flóa og Skeiða. Tvo fulltrúa og tvo til vara, sbr. ákvæði í fjallskilasamþykkt og lög um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986.
2. Almannavarnanefnd Árnesinga einn fulltrúa og einn til vara skv. 8. gr. laga um almannavarnir nr. 94/1962.
3. Atvinnu, fjarskipta, og samgöngunefnd . Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera hreppsnefnd til ráðuneytis í þessum málaflokkum, hafa frumkvæði að tillögugerð á þessum sviðum til hreppsnefndar og vera umsagnaraðilli í þessum málaflokkum til dæmis varðandi úthlutanir úr atvinueflingarsjóði.
4. Menningar, æskulýðs, velferðar- og jafnréttisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera hreppsnefnd til ráðuneytis í þessum málaflokkum, hafa frumkvæði að tillögugerð á þessum sviðum til hreppsnefndar og vera umsagnaraðilli í þessum málaflokkum. Nefndin fer einnig með málefni bókasafnsins skv. 7. gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997 og jafnréttismál samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.
5. Skipulagsnefnd uppsveita Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og samningi sveitarfélaganna um sameiginlega skipulags og byggingarnefnd.
6. Félagsmálanefnd uppsveita Árnessýslu. Einn aðalmaður og einn til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og samningi sveitarfélaganna um sameiginlega félagsþjónustu.
7. Afréttarnefnd Gnúpverjaafréttar. Nefndin sér um niðurröðun fjallskila og er sveitarstjórn til ráðgjafar varðandi málefni Gnúpverjaafréttar. Nefndin verði skipuð fjallkóngi, og tveimur öðrum af hreppsnefnd.
8. Fulltrúaráð Brunavarna Árnessýslu. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt samþykktum Brunavarna Árnessýslu.
9. Héraðsnefnd Árnesinga. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt samningi um Héraðsnefnd.
10. Húsnæðisnefnd. Hreppsnefnd fer með verkefni húsnæðisnefndar samkvæmt ákvæðum laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
11. Hússtjórn Þjóðveldisbæjar í Þjórsárdal. Einn fulltrúi og einn til vara samkvæmt máldaga um Þjóðveldisbæinn, dags. 19. júlí 2002.
12. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn fulltrúi og einn til vara, sbr. lög sambandsins.
13. Ráðgjafarnefnd um friðun Þjórsárvera. Einn fulltrúi og einn til vara.
14. Skipulagsnefnd. Hreppsnefnd fer með verkefni skipulagsnefndar samkvæmt ákvæðum skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
15. Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
16. Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 13. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 og 9. gr. laga um leikskóla nr. 78/1994.
17. Fræðslunefnd Flúðaskóla. Tveir fulltrúar og tveir til vara samkvæmt samkomulagi við Hrunamannahrepp.
18. Stjórn hitaveitu í Brautarholti, kaldavatnsveitu í Árnesi, og annarra veitumannvirkja sem sveitarfélagið hefur aðkomu og heyra undir hreppsnefnd.
19. Þjónustuhópur aldraðra. Starfar skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og í honum skal vera einn sameiginlegur fulltrúi fyrir sveitarfélög sem aðild eiga að Laugarásslæknishéraði. Samkvæmt erindisbréfi sameiginlegrar félagsmálanefndar uppsveita Árnessýslu skal formaður hennar vera fulltrúi sveitarfélaganna sem að henni standa í umboði sveitarstjórna á heilsugæslusvæðinu.
20. Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 44/1999.
21. Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um kosningar
til sveitarstjórna nr. 5/1998.
52. gr.
Hreppsnefnd getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils hreppsnefndarinnar
og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Hreppsnefnd getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.
V. KAFLI
Um framkvæmdastjórn og starfslið hreppsins.
53. gr.
Hreppsnefnd ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjórann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma
hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af hreppsnefnd.
54. gr.
Ef ekki er ráðinn sveitarstjóri hefur oddviti með höndum daglega stjórn hreppsins, undirbýr fundi hreppsnefndar, annast framkvæmd ákvarðana
hreppsnefndar og annarra málefna hreppsins, svo sem bréfaskipti, gjaldheimtu og reikningshald.
Laun oddvita þar sem ekki er starfandi sveitarstjóri skulu ákveðin sérstaklega af hreppsnefndinni. Skulu launin endurskoðuð reglulega í samræmi
við almennar launabreytingar í landinu.
Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum hreppsins sem oddviti sér um, á hann rétt á sérstakri þóknun
fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun hreppsnefndarinnar. Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundahalda í þágu hreppsins
á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu.
55. gr.
Sveitarstjóri undirbýr fundi hreppsnefndar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum hreppsnefndarinnar og hefur þar málfrelsi og
tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í hreppsnefndina. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda hreppsins með sömu réttindum.
Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana hreppsnefndar og málefna hreppsins að svo miklu leyti sem hreppsnefndin hefur ekki ákveðið annað.
Sveitarstjórinn er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna hreppsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða
ráðstafanir sem samþykki hreppsnefndarinnar þarf til. Sveitarstjóranum er heimilt með samþykki hreppsnefndarinnar að veita öðrum starfsmanni
hreppsins prókúru.
Sveitarstjórinn er æðsti yfirmaður starfsliðs hreppsins.
Sveitarstjórinn ákveður hver gegna skuli störfum hans í forföllum hans.
56. gr.
Hreppsnefnd ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda hreppsins, og veitir þeim lausn frá störfum.
57. gr.
Hreppsnefnd ræður aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 62. gr. nema á annan veg sé mælt í reglugerð eða reglum sem hreppsnefnd hefur sett.
58. gr.
Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem hreppsnefnd setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.
59. gr.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna hreppsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.
VI. KAFLI
Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.
60. gr.
Fyrir lok janúarmánaðar ár hvert skal hreppsnefnd afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana hreppsins fyrir yfirstandandi ár að
undangengnum tveimur umræðum í hreppsnefnd. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til
félagsmálaráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.
Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um
efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur hreppsnefnd ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það
er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af
fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.
Hreppsnefndin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld hreppsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.
61. gr.
Fjárhagsáætlun skv. 60. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn hreppsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna
til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af hreppsnefndinni.
Samþykki hreppsnefnd fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda,
svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.
62. gr.
Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er hreppsnefnd heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir hreppsnefnd við
eina umræðu á hreppsnefndarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í hreppsnefnd með dagskrá viðkomandi hreppsnefndarfundar.
63. gr.
Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal hreppsnefnd semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál hreppsins. Þessi
þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir hreppsins. Skal hún unnin og afgreidd af hreppsnefnd innan eins mánaðar frá
afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.
64. gr.
Strax að lokinni afgreiðslu hreppsnefndarinnar skal senda félagsmálaráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 60. gr. og þriggja ára áætlun skv. 63. gr.
Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 62. gr.
65. gr.
Ársreikningur hreppsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í hreppsnefnd fyrir lok aprílmánaðar.
Hreppsnefndin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.
Hreppsnefnd skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana hreppsins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert.
Hreppsnefndarmenn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn.
Eintak af ársreikningnum skal senda félagsmálaráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.
Samþykkt þessi, sem hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998,
staðfestist hér með til að öðlast gildi að afloknum sveitarstjórnarkosningum 2006. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og
fundarsköp Skeiða- og Gnúpverjahrepps, nr. 807/2002.
Félagsmálaráðuneytinu 22. febrúar 2006
F.h.r.




