486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Útsvar og álagning fyrir árið 2012

Tillaga að útsvarsprósentu og álagningu fasteignagjalda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2012 tekin fyrir á 23. fundi sveiitarstjórnar og samþykkt að lækka fasteignaskattshlutfall í A flokki úr 0,60% af heildar fasteignamati í 0,50 % af heildar fasteignamati.

a. Útsvar
 

Útsvar fyrir árið 2012 verður 14,48%

 

b. Fasteignagjöld
 

A- flokkur.
Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis eins og þær eru skilgreindar í 3.gr. í lögum nr.4/1995 verður 0,50% af heildar fasteignamati.


B- flokkur.
Fasteignaskattur af opinberum byggingum eins og þær eru skilgreindar í 3. gr. í lögum nr.4/1995 verður 1,32% af heildar fasteignamati.


C- flokkur.
Fasteignaskattur atvinnuhúsnæðis og öðrum eins og þær eru skilgreindar í 3. gr. í lögum nr. 4/1995 verður 1,65% af heildar fasteignamati.


Afsláttur af fasteignaskatti fer eftir samþykktum sveitarstjórnar frá 7. febrúar 2006. Samkvæmt 3. gr. þeirrar samþykktar geta þeir sem eru eldri en 67.ára, og þeir sem eru 75% öryrkjar eða meira sótt um afslátt á fasteignagjöldum þeirrar íbúðar sem þeir búa í og ekki er nýtt af öðrum, tekjuviðmiðið er í lið 7.
Gjalddagar fasteignaskatts eru í lið 8.

Lagt er til að afsláttur á fasteignagjöldum taki breytingum frá árinu 2011 í samræmi við breytingu á vísutölu neysluverð á tímabilinu 1. des 2011 til 1. des. 2012.


Tillagan samþykkt.

 

  

Útsvar fyrir árið 2011 var 13.28%

Samþykkt á 09. sveitarstjórnarfundi 07.12.2010

 

ÁLAGNINGARÁKVÆÐI  í Skeiða- og Gnúpverjahreppi  2011 er sem hér segir:

 

1.  Lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum.


II kafli um fasteignaskatt, 3. gr.:      
Stofn til álagningar fasteignaskatts á aðrar fasteignir skal vera fasteignamat þeirra. 

Skatturinn skal vera sem hér segir:


a.  Allt að 0,625% af álagningarstofni.
Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir, sem ekki eru nytjaðar til annars en landbúnaðar, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.


b.  Allt að 1,650% af álagningarstofni.
Heimilt er sveitarstjórn að hækka um allt að 25% hundraðshluta þar, sem tilgreindir eru í 3. mgr. þessarar greinar, samkvæmt öðrum hvorum eða báðum stafliðum.”


2.  Lóðarleiga fer eftir leigusamningi.


3.  Álagningarstofn vatnsskatts er hinn sami og fasteignaskatts þó að hámarki 0,3 hundraðshlutar af álagningarstofni.  Heimilt er sveitarstjórn að miða vatnsskatt við stærð fasteignar og/eða
notkun skv. mæli eða fast gjald sbr. lög nr. 81/1991.


4.  Álagningarstofn holræsagjalds er fasteignamat húss og lóðar.  Gjald má miða við virðingarverð fasteigna eða við stærð lóðar eða við hvorutveggja sbr. vatnalög.


5.  Önnur þjónustugjöld eru ákveðin af sveitarstjórn.

 

Álagning í Skeiða- og Gnúpverjahreppi  2011:

       Fasteignaskattur A 0,60% af álagningarstofni.
       Fasteignaskattur C 1,65% af álagningarstofni.
       Fasteignaskattur B 1,32% opinberar byggingar


       Vatnsskattur íbúðarhúss  er  0,3% fm
       Vatnsskattur sumarhúsa er   24.000.-
       Vatnsskattur atvinnuhúsnæðis og lögbýlis er 0,2% fm.


       Sorpeyðingargjald er                       8.400. kr.á sumarhús.
       Sorpeyðingargjald er                      11.218. kr. á íbúð.
       Sorphirðugjald 240 l ílát er               11.077 .kr.
       Sorphirðugjald 660 l ílát er               32.603.kr.
       Sorphirðugjald 1.100 l ílát er            53.985.kr.  
       Sorpeyðingargjald atvinnureksturs    30.565.kr.
       Fráveitugjöld                                       5.833.kr.


        Lóðaleiga 2011

       Lóðaleiga í þéttbýli Árnes-Brautarholt        10.628. kr.
       Lóðaleiga atvinnu- og Þjónustuhús            26.979. kr.
       Lóðaleiga smábýlalóðir 4ha og minni        26.979. kr.
       Lóðaleiga smábýlalóðir stærri en 4ha.      40.888. kr.
 

      Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

       

Afsláttur af fasteignaskatti fer eftir samþykktum sveitarstjóprnar frá 7. febrúar  2006.  

Samkv. 3. gr. þeirrar samþykktar geta þeir sem eru eldri en  67 ára, og þeir sem eru 75% öryrkjar eða meira, sótt um afslátt á fasteingnagjöldum þeirrar íbúðar sem þeir búa í og ekki er nýtt af öðrum tekjuviðmiðið er í lið 7.

Leggja skal inn skriflega umsókn til hreppsskrifstofu ásamt staðfestu skattframtali næstliðins árs.

Umsókn öryrkja skal ennfremur fylgja vottorð um örorkumat. Við ákvörðun afsláttar skal einnig tekið tillit til tekna maka.

Umsóknir eru afgreiddar af sveitarstjóra á grundvelli tekjuviðmiðunara sem hreppsnefnd ákveður hvert ár.

Tekjuviðmiðun vegna afsláttar frá fasteignaskatti 2011

Tekjur einstaklinga                       Afsláttur

Frá 0 kr.            til 1.959.060 kr.    100%
Frá 1.959.061 kr. til 2.242.493 kr.      80%
Frá 2.242.494 kr. til 2.374.405 kr.      60%
Frá 2.374.406 kr. til 2.514.075 kr.      40%
Frá 2.514.076 kr. til 2.661.962 kr.      20%
Frá 2.661.963 kr. og hærri                  0%

 

Tekjur hjóna                                Afsláttur

Frá 0 kr.            til 2.984.116 kr.     100%
Frá 2.984.117 kr. til 3.252.864 kr.      80%
Frá 3.252.865 kr. til 3.520.143 kr.      60%
Frá 3.520.144 kr. til 3.788.889 kr.       40%
Frá 3.788.890 kr. til 4.059.096 kr.       20%
Frá 4.059.097 kr. og hærri                   0%

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar