486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Umhverfismál

Viðmiðunarreglur vegna umhverfisverðlauna í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2011.

Þeir sem eiga rétt :
Einstaklingar, heimili, sveitabæir, fyrirtæki, félagsskapur, stofnanir, sumarbústaðir og fleiri aðilar innan sveitarfélagsins.

Þættir sem hægt er nýta til rökstuðnings:


 

• Snyrtimennska og góð umgengni.
o Ásjóna, byggingar, umgengni ?
o Viðeigandi flokkun á sorpi ?
o Er skítur, rudda og afgangshey notað til jarðræktar eða landbóta?
o Fleira sem telja mætti telja til snyrtimennsku og góðrar umgengni ?

 

• Efnanotkun
o Eru notuð einhver eituefni (illgresiseyðar, skordýraeitur etc.) t.d. við garðyrkju hverskonar ?
o Eru svansmerkt / umhverfismerkt hreinsiefni og sápur notuð ?
o Er fleira sem vert er að taka tillit til sem tengist efnanotkun ?

 

• Landnýting
o Er landnýting sjálfbær?
o Ef rof er til staðar er þá verið að vinna markvisst í því?
o Er hugað að votlendi og áætlun um endurheimt?
o Eru fleiri þættir sem vert er að taka tillit til með landnýtingu í huga ?

 

• Meðferð á dýrum
o eru athugasemdir frá búfjáreftirlitsmönnum ?
o Eru fleiri þættir sem hafa áhrif ?

 

• Orkunotkun
o Er hugað að orkunotkun á heimili og í búskap; hvernig?
o Eru fleiri hugmyndir í vinnslu hvað varðar orkunýtingu ?

 

• Frumkvæði í umhverfisvernd?
o Er nú þegar,  eða eru áform uppi/áætlun um endurheimt votlendis, griðland fyrir fugla, fuglaskoðunaraðstaða, villjurtasvæði, endurheimt birkiskóga ?
o Er verið að vinna að öðrum þáttum sem snúa að umhverfisnefnd ?

• Er markvisst verið að eða eru áform uppi um viðhald menningararfs?
- sem dæmi:
o landnámshænur,
o þátttaka við að viðhalda íslenska geitastofninum,
o forystufé
o viðhald á hefðbundinni verkkunnáttu, s.s. hleðslulist, reykingar, notkun jurta til heilsueflingar, sláttur með orfi og ljá, flatkökubakstur, kleinugerð, ullarvinnsla, viðhald eða endurbygging á gömlum torfhúsum.

o Fleiri hugmyndir ?

 

Með góðum kveðjum
Umhverfisnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

 

 

 

Laufblöð og Plastumbúðir.

Laufblöð eru vissulega lífræn og ættu að eiga erindi í moltuna en Íslenska gámafélagið óskar eindregið eftir því að laufblöð séu  ekki sett í brúnu tunnuna því þau eru garðaúrgangur og jarðgerðarvélin getur ekki torgað svo miklu af garðaúrgangi ef þau færu með. Laufblöð eru mjög fljót að brotna niður og það getur verið ágætt að dreifa þeim yfir t.d. blóma-, trjá-, eða matjurtabeð. þegar þau síðan brotna niður verða þau að næringu sem fer  í jarðveginn og því hagstætt fyrir plöntur sem þar vaxa.

það hafa verið miklar breytingar varðandi flokkun og endurvinnslu á plasti undanfarið,  enda um mjög flókin flokk að ræða.

Nú er það þannig að allar umbúðir úr plasti, hvort sem þær eru merktar eða ekki, einnig þær sem eru samsettar úr áli  og plasti (kaffipokar, snakkpokar ofl.) mega fara í grænu tunnuna!  Hvort sem mjúkt eða hart plast er að ræða,  en eftir sem áður er nauðsynlegt að skola burt allar matarleifar.

Með bestu kveðju.

Form. Umhverfisnefndar

 

 

 

 

Áminningarsnepill um Hreinsunarátak

 í Skeiða– og Gnúpverjahreppi


 

20. maí—16. júní 2011  og lengur ef vill!

 

 

Föt í Rauða krossinn.

Gámar fyrir notuð föt verða staðsettir á gámasvæðinu í Árnesi í júní.  Nú er því um að gera að taka til í geymslunni og koma gömlum fötum sem enginn vill lengur...   í nytsamlega notkun annarsstaðar.

Við minnum á að..
hægt er að fá gáma heim, ykkur að kostnaðarlausu á þessu tímabili (á öðrum tíma þarf að borga fyrir).
nýta ráðgjöf og leiðbeiningar starfsmanna áhaldahússins.
síðast en ekki síst:  að taka vel til.


Málning?
Við fengum ábendingu um það hvort að sveitarfélagið gæti ekki fengið góðan afslátt af málingu. Það athugaði Ari í áhaldahúsinu og niðurstaðan var sem sagt sú að hægt er að fá afslátt af málinu hjá:
Pakkhúsið Hellu  25% afslátt
Flugger– litir Selfossi 30% afsl. en ókeypis ráðgjöf heima á hlaði og meiri afsláttur fyrir stórinnkaup, t.d. ef nokkrir taka sig saman.
 

Nánari upplýsingar veitir Ari í áhaldahúsinu í síma:
486 6118 og 893 4426

Greinakurlari.
Stefnt er á að fá greinakurlara einn dag og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við áhaldahús svo hægt sé að finna dag sem hentar.  Keyra verður greinaúrganginn á einn stað þar sem greinakurlarinn verður staðsettur.

Með góðri kveðju   

Umhverfisnefnd Skeiða– og Gnúpverjahrepps.

 

 

 

 

Lítill grænn pistill frá umhverfisnefnd 15.3.2011

Á síðasta fundi hreppsnefndar var samþykkt að óska eftir alútboði varðandi framkvæmdir á gámasvæðinu okkar í Brautarholti.  Þessu fagnar umhverfisnefnd enda ekki vanþörf á að koma gámasvæðunum okkar í viðunandi horf.  Á næstunni verða gámasvæðin lokuð með hliði og sérstakur opnunartími hafður fyrir íbúa sveitarfélagsins.  Eins og önnur sveitarfélög í kring neyðumst við til að læsa gámasvæðunum og með því er verið að tryggja að utanaðkomandi séu ekki að koma sorpi sínu fyrir hér hjá okkur.  Kostnaður sveitarfélagsins vegna sorphirðu er nógu mikill fyrir að við séum ekki að borga fyrir aðra sem þurfa að greiða fyrir það í sínu sveitarfélagi.  Þetta fyrirkomulag verður rækilega kynnt fyrir sveitunga.
Gámasvæðið í Árnesi verður því miður enn að bíða um stund, ástæður þess eru margþættar.   Eftir sem áður rekur umhverfisnefnd á eftir hreppsnefnd að koma því gámasvæði í viðunandi horf hið fyrsta. 
 
Samkvæmt samningi við Íslenska gámafélagið hefur sveitarfélagið kost á að fá gáma fyrir lítinn kostnað og tilheyrir það sérstöku hreinsunarátaki sem væri skipulagt í sveitarfélaginu.  Umhverfisnefnd var falið að skipuleggja slíkt átak og verður það gert núna fyrripart sumars.  Fyrirkomulag átaksins verður kynnt sérstaklega fyrir íbúum þegar nær dregur.
 
Umhverfisnefnd hefur oftar en einu sinni velt fyrir sér hvort ekki sé hægt að fá fleiri íbúa sveitarfélagsins til að farga sínu lífræna sorpi upp á eigin spýtur – en á viðeigandi hátt.  Til þess eru margar leiðir, ekki bara moltutunnuaðferðin.  Ef við fækkum þeim bæjum sem þarf að sækja lífrænt sorp til, þá spörum við akstur og fækkum ferðum stórs bíls heim á bæjarhlöðin.  En við þurfum að gera þetta rétt og þess vegna viljum við kanna áhuga íbúa á námskeiði í safnhaugagerð. 

 Eins getur formaður nefndarinnar boðið uppá ókeypis fræðslu um eina aðferð sem kallast ,,safnhaugur letingjans“, (áhugasamir hafi samband til form. umhverfisn.: Vilborgu M. Ástráðsd. í síma 8639689 eða á netfangið vilmaria@ismennt.is )
 
Það eru fjölmörg mál sem eru rædd á fundum umhverfisnefndar, sum eru formleg önnur ekki en miða öll að því að bæta umhverfismál í sveitarfélaginu. Fundargerðir nefndarinnar eru aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins og vonandi geta íbúar sótt sér einhverjar upplýsingar þar.  Jafnframt væri gott að fá ábendingar eða spurningar frá sveitungum um málefni sem brýnt væri að fjalla um.
 
Með bestu kveðju
Vilborg M. Ástráðsdóttir form. umhverfisnefndar.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar