43. fundur 17. ágúst 2004
43. fundur hreppsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps var haldinn þriðjudaginn 17. ágúst kl. 11 í Árnesi.
Fundinn sátu: Aðalsteinn Guðmundsson, Hrafnhildur Ágústsdóttir, Björgvin Þór Harðarson í fjarveru Gunnars Arnar Marteinssonar, Þrándur Ingvarsson, Tryggvi Steinarsson, Matthildur E. Vilhjálmsdóttir og Ingunn Guðmundsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð, Ólafur F. Leifsson boðaði forföll. Þá tóku þátt í fundinum undir fyrsta lið, Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Albert Guðmundsson frá flutningssviði Landsvirkjunar.
Dagskrá:
Erindi frá flutningssviði Landsvirkjunar dags. 4. ágúst þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi vegna Sultartangalínu 3. Gögn varðandi umsóknina sem að Skeiða- og Gnúpverjahreppi snúa voru send út með fundarboði. Albert Guðmundsson kynnti fyrirhugaða framkvæmd, aðallega þann hluta sem liggur innan Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Framkvæmdin felst í stækkun tengivirkisbyggingar við Sandafell og línulögn þaðan og vestur fyrir Stóru Laxá.
Skipulagsfulltrúi ræddi stöðu aðalskipulags gagnvart framkvæmdinni og lagði til að gerð yrði viðeigandi breyting á gildandi aðalskipulagi Gnúpverjahrepps sem er óveruleg og í samræmi við fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
Samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að leita eftir heimild Skipulagsstofnunar til að auglýsa breytingu á gildandi aðalskipulagi Gnúpverjahrepps til samræmis við fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Sveitarfélagið tekur að sér að bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir vegna breytingarinnar.
Samþykkt að veita Landsvirkjun framkvæmdaleyfi vegna Sultartangalínu 3 með fyrirvara um breytingu á aðalskipulagi Gnúpverjahrepps. Hreppsnefnd leggur áherslu á samráð Landsvirkjunar varðandi úrbætur á vaði á Fossá og vegarslóða yfir ,,Hafið”. Ljóst er að framkvæmdaraðili þarf að nýta sér veginn yfir Hafið á framkvæmdatímanum. Þar sem núverandi ástand vegarins ber ekki þungaflutninga þarf að gera á honum lagfæringar. Varðandi þær lagfæringar vísar hreppsnefnd í kafla 2.9 Frágangur í verklok, þar sem segir:,,Jafnframt verða slóðir lagfærðar og gerðar ráðstafanir til að hindra úrrennsli í leysingum og stórrigningum.” Í þessu samhengi vísar hreppsnefnd einnig í kafla 3 Umhverfismál 3.1 liður 5 þar sem segir: ,,Slóðagerð vegna línulagnar verði samræmd landnotkunaráformum sveitarfélaga og landeigenda.”
Tryggvi Steinarsson vék af fundi að loknum þessum lið.
Tillaga að þriggja ára áætlun 2005-2007 fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp til fyrri umræðu. Sveitarstjóri lagði fram minnispunkta varðandi gerð tilllögunar sem gerir ráð fyrir svipuðum skatttekjum, engum langtímalántökum, sölu eigna, viðhaldi og endurbótum húseigna, gatnaframkvæmdum og hagræðingu í rekstri. Hreppsnefndarmenn komu með fyrirspurnir og ábendingar varðandi áætlunina. Samþykkt að vísa áætluninni til síðari umræðu á næsta hreppsnefndarfundi.
Fjallskil 2004
Ráðning fjallkóngs. Samþykkt að fela Lilju Loftsdóttur starfið.
Fjárhagsáætlun, fyrir lá áætlun frá 2003 samþykkt að fela sveitarstjóra og Lilju að ganga frá áætlun fyrir 2004 og leggja óbreyttar launatölur til grundvallar.
Önnur mál.
Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Nú er vinna við aðalskipulagið á lokastigi, sveitarstjóri lagði fram tölvupóst frá Ómari Ívarssyni hjá Landslagi þar sem staðan er kynnt. Gert er ráð fyrir að ljúka vinnunni á næsta hreppsnefndarfundi. Sveitarstjóri kynnti drög að bréfi til Skipulagsstofnunar og Rangárþings ytra með ósk um fund vegna ósamræmis milli sveitarfélaganna vegna virkjunaráforma í neðri hluta Þjórsár. Samþykkt að óska eftir fundi.
Sveitarstjóri kynnti stöðu innheimtu gjalda, 5.670.000 eru útistandandi þar af 3.804.000 vegna fasteignagjalda. Einnig ræddi hún viðhaldsmál í Skeiðalaug, lóðamál Leikholts og kaup á ofni í eldhús Árness.
900 ár frá lokum Heklugoss og eyðingu byggðar í Þjórsárdal. Sveitarstjóri sagði frá hugmyndum um ,,goslokahátíð” í samstarfi fornleifastofnunar og hreppsins. Hreppsnefnd lýsti ánægju sinni með hugmyndirnar.
Fundi slitið kl. 14:10




