486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
14.12.2011

Skólanefndarfundur nr. 15. - 13.12.2011.

Þessi fundargerð hefur ekki verið lögð fyrir hreppsnefnd. 

Fundur, þriðjudaginn 13. desember 2011 kl. 20:00, haldinn í Árnesi.

Grunnskólamál og leikskólamál                           

Mættir eru: 
Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Georg Kjartansson,  Helga Kolbeinsdóttir,  Vilborg M. Ástráðsdóttir leikskólastjóri,  Bolette Hoeg skólastjóri,  Hildur Lilja Guðmundsdóttir fulltrúi foreldra, Ingvar Þrándarsson fulltrúi foreldra í grunnskóla og Helga Guðlaugsdóttir fulltrúi starfsfólks leikskólans.


Kjartan Ágústsson fulltrúi starfsfólks og Lára Bergljót Jónsdóttir boðuðu forföll, ekki var unnt að fá varamenn.


Vilborg M. Ástráðsdóttir skráði fundargerð.


Dagskrá fundar:


1. Fjárhagsáætlun, grunnskóla og leikskóla 2012
Fjárhagsáætlun er á milli umræða í sveitarstjórn. Oddviti fór yfir fjárhagsáætlun skólanna fyrir árið 2012.  Gjaldskrár hækka í samræmi við spá  Sambands ísl. sveitarf. um verðlagsþróun á næsta ári, gjaldskrár almennt hækka um 4,2%.

Úttekt Kpmg endurskoðunar á grunn- og leikskóla skoðuð.  Skýrslan sýnir að rekstur þessara stofnanna sé í eðlilegum farvegi.  Leikskólastjóri hefur gert athugasemdir við  ákveðna þætti skýrslunnar.

2. Samstarf við Flúðaskóla vegna skólaþings
Aðkoma okkar að þinginu þarf að vera ljós. Mikilvægt er að vera þátttakandi í mótun sameiginlegrar skólastefnu og hafa gildandi skólastefnu til hliðsjónar þegar við förum í þetta starf. Taka verður ríkt tillit til sérkennara skólastofnananna. Eðlilegt að fulltrúar okkar í skólanefnd  Flúðaskóla taki þátt í undirbúningsnefnd.

3. Breytingar á starfsreglum leikskólans
Drög að nýju Vistunarblaði samþykkt.
Drög  að nýjum Starfsreglum leikskólans samþykkt.
Drög að nýjum Dvalarsamningi samþykkt.


Breytingar taka gildi 1. febrúar 2012.

 

Fundi slitið kl. 21:50

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar