486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
24.11.2011

Skólanefndarfundur nr. 14. 23.11.2011.

 

Leikskólamál                           

Mættir eru: 
Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Halla Sigríður Bjarnadóttir,  Lára Bergljót Jónsdóttir,  Helga Kolbeinsdóttir,  Vilborg M. Ástráðsdóttir leikskólastjóri og Hildur Lilja Guðmundsdóttir fulltrúi foreldra Sigríður Björk Gylfadóttir fulltrúi starfsfólks leikskólans boðaði forföll.

 

Dagskrá fundar:


1. Farið yfir gjaldskrá og vistunarreglur leikskólans.
Gjaldskrár- og vistunarreglur hjá nágrannaleikskólum skoðaðar. Vilborg varpaði fram hugmyndum um breytingu á vistunartíma. Skólastjóra falið að koma með tillögur á næsta fund. Ingvar fór af fundi. Samræma þarf niðurfellingu á fæðisgjaldi milli grunn- og leikskóla. Leikskólastjóra falið að koma með tillögur á næsta fundi.


2. Farið yfir undirbúningsvinnu við fjárhagsáætlun 2012.
Fjöldi stöðugilda stefnir í sama fjölda og er núna. Fjárhagsáætlun 2011 stefnir í að standast.

Næsti fundur verður sameiginlegur með skólanum 13. des kl. 20:00.

Fundi slitið kl. 21:30

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar