486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
15.11.2011

Skólanefndarfundur nr. 13. 11.11.2011.

Skólanefndarfundur nr 13
Föstudaginn 11.nóv. kl 16:00 í Þjórsárskóla

Mættir eru: Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Lára Bergljót Jónsdóttir, Helga Kolbeinsdóttir, Bolette Höeg Koch  skólastjóri, Ingvar Þrándarson fulltrúi foreldra, Kjartan Halldór Ágústsson fulltrúi kennara.

 

1 Starfsáætlun fyrir árið 2011-2012
Farið yfir áætlunina. M.a. farið yfir nýyfirfarna viðbragðsáætlun sem hægt er að nálgast á heimasíðu skólans.

 

2 Almennur hluti námskrár
Farið yfir almenna hlutann. Það er vinna í gangi varðandi sex stoðir nýrrar aðalnámskrár.

 

3 Reglur um borgun í mötuneyti
Lagt til að samræma reglur um mötuneytisuppgjör.

 

4 Önnur mál
-farið yfir atriði úr nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum.


-farið yfir reglugerð um forfallakennslu, skólinn stendur vel hvað forfallakennslu varðar, þar sem kennarar leysa af í flestum tilvikum.


-rætt um úttekt á rekstri skólans sem verður tekin fyrir í tengslum við væntanlega  fjárhagsáætlun.


-stefnt er að því að halda sameiginlegt málþing með Hrunamannahrepp um skólastefnu fyrir sveitarfélögin.


-Skólastjóra falið að undirbúa kynningarfund á Olweusar áætluninni.


-fyrsta verkefnið í heilsueflandi skóli er geðrækt.


-næsti fundur sameiginlegur með leikskólanum verður þriðjudaginn 6.des kl.20.

 

Fundi slitið kl. 17:30

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar