Umhverfismefndarfundur nr. 7 24.10.2011
Fundur No. 7
Fundinn sátu:
Vilborg Ástráðsdóttir
Úlfhéðinn Sigmundsson
Sigþrúður Jónsdóttir
Stefanía Sigurðardóttir
Formaður setti fund kl. 20:40
1. Umhverfisverðlaun 2011
Einstaklingar, heimili, lögbýli, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir, sumarbústaðir, ofl. eiga kost á að fá tilnefningu.
Þættir sem hafa áhrif á veitingu umhverfisverðlauna:
- Vísað er í drög að umhverfisverðlaunum.
2. Samantekt frá hreinsunarátaki.
Fáeinir gámar fóru heim á bæji og nýttir til hreinsunar þar. Fatagámar voru staðsettir á báðum gámasvæðum og eru vel nýttir. Kurlari var ekki nýttur né málingarafsláttur.
Hreinsunarátak verður skipulagt næsta vor og markmiðið er að það skili betri árangri.
3. Umgengni við Hólaskóg.
Bæta þarf umgengni við Hólaskóg og eins þarf að laga girðingar og bæta beitarskipulag.
4. Brúna tunnan og breytingar á flokkun á plasti
a. Nefndin veltir því fyrir sér hvernig megi fá fólk til að jarðgera því það séu margar leiðir til þess. Nefndin leggur mikla áherslu á að brúna tunnan eigi smátt og smátt að hverfa því það er óheyrilegur kostnaður sem fylgir því að stór sorpbíll sé að keyra heim á bæji. Hugsanlega er gagnlegt að skrifa gott upplýsingabréf til sveitunga til að gera þeim grein fyrir kostnaðinum og menguninni.
b. Allt plast, mjúkt eða hart, merkt eða ómerkt á að fara í grænu tunnuna. Eftir sem áður þarf plastið að vera laust við matarleyfar og óhreinindi. Nefndin fagnar þessu.
5. Önnur mál
5.a. Heimsókn frá Skipulags-,byggingar- og umhverfisnefnd Ölfus 19. september 2011. Þessari nefnd var falið að móta tillögur til breytingar á framtíðarskipulagi og skipulagi á flokkun og förgun sorps og komu hingað til að kanna hvernig okkar tilhögun var.
5.b. Sigþrúður sótti umhverfisþing þar sem svokölluð Hvítbók var kynnt. Á grundvelli Hvítbókarinnar á að vinna ný náttúruverndarlög. Hægt er að gera athugasemdir til desember þessa árs. Á vef umhverfisráðuneytis má finna Hvítbókina. Mjög flott þing og skilaði mjög miklu.
5. c. Ársfundur umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga. Formaður nefndar kemur til með að sækja þennan fund sem verður í Mosfellsbæ 27. okt.
5.d. Samningur við Ísl. Gámafélagið rennur út eftir u.þ.b. ár.
5.e. Mjög mikið drasl meðfram vegum, sérstaklega frá Árnesi og amk fram að Sandlækjarholti. Áldósir, plastflöskur og annað þ.h.
Næsti fundur 21. nóvember n.k.
Fundi slitið 22:15




