Skólanefndarfundur nr. 12 - 21.09.2011
21. september kl. 20:00 - Grunnskólamál.
Mættir: Jón Vilmundarson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Lára Bergljót Jónsdóttir, Helga Kolbeinsdóttir, Ingvar Hjálmarsson, Bolette Höeg Koch skólastjóri, Kjartan Halldór Ágústsson fulltrúi kennara, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Gunnar Örn Marteinsson oddviti.
Nýr skólastjóri boðinn velkominn.
1. Skóladagatal. Það var búið að samþykkja það.
2. Skólaakstur. Jóhanna spyr um skólaaksturinn frá Brautarholti, þ.e. hvort það sé pláss fyrir yngri börnin strax með Bjarna svo þau þurfi ekki að skipta um bíl. Bolette ætlar að skoða þetta með bílstjórunum. Einnig ræddi Jóhanna um stoppistöðvar í Brautarholti að ósamræmi sé í heimakstrinum, Bolette ætlar að skoða það einnig.
3. Starfsáætlun – drög. Bolette fór yfir hana. Fá börn eru í skólavistun, ákveðið að taka stöðuna á næsta fundi. Rætt um mikilvægi þess að minna á beltanotkun í skólabílum. Varðandi sundkennslu þá gengur skiplagið sem var lagt upp með ekki upp og er verið að leita leiða til að komast að sem bestu niðurstöðu. Sundkennsla verður kennd bæði í Árnesi og Brautarholt til að fylgja markmiðum.
4. Starfsmenn. Farið yfir starfsmenn skólans. Umræður um listnám, jákvætt að nemendur fá tón- og leiklist í vetur. Nefnt að það sé brýnt að koma að myndlistarkennslu næsta vetur.
5. Fundartímar í vetur. Næsti fundur verður 11. nóv kl. 17:30 og þar næsti fundur sameiginlegur með leikskólanum 9. des kl. 16.
6. Önnur mál.
-Helga talar um að það þurfi að sópa malbikið fyrir framan skólann, vegna slysahættu. Einnig vantar merkingar í grennd við skólann og hraðahindrun við Skólabraut, vegna hraðaksturs. Það sama á við varðandi öryggi skólabarna í Brautarholti þegar þau labba að skólabíl.
-Gunnar talar um að sveitarstjórn ætli að fá úttekt frá KPMG varðandi rekstur á stofnunum í sveitarfélaginu.
-Bréf til skólanefndar frá trúnaðarmanni kennara varðandi hagræðingu í skólanum. Vísað til sveitarstjórnar.
Fundi slitið kl. 10:15




