Skólanefndarfundur nr. 10 - 21.06.2011
Fundur nr. 10 í skólanefnd, þriðjudaginn 21. Júní kl. 10.
Grunnskólamál
Mættir eru: Jón Vilmundarson, Helga Kolbeinsdóttir, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Ingvar Hjálmarsson, Lára Bergljót Jónsdóttir, Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Kjartan Halldór Ágústsson fulltrúi kennara.
1. Skýrsla um skólavistun lögð fram.
2. Skýrsla um sérkennslu lögð fram.
3. Skýrsla um skólahald lögð fram. Einnig lögð fram aðalskoðun leiksvæðis sem verður yfirfarin á næsta fundi.
4. Um þagnarskyldu. Rætt um þagnarskyldu og farið yfir greinar úr sveitarstjórnarlögum um þagnarskyldu hjá fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins.
5. Trúnaðarmál.
6. Önnur mál.
Lagt fram bréf frá Bente Hansen um úrbætur varðandi íþróttaaðstöðu, skólanefnd vísar erindinu til sveitarstjórnar.
Ósk um undanþágu frá vistunarreglum í leikholti þar sem farið er fram á að barn fái að hefja vistun mánuði fyrr en reglur segja til um vegna sérstakra aðstæðna. Það var samþykkt.
Lögð fram jákvæð umsögn frá verkefnisstjóra sambands íslenskra sveitarfélaga um skólastefnu sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 12:20.




