Skólanefndarfundur nr. 09 leik- og grunnskólamál
Leikskólamál – grunnskólamál
Fimmtudaginn 26.maí 2011 kl. 20:30
Mættir eru: Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Lára Bergljót Jónsdóttir, Helga Kolbeinsdóttir, Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri, Vilborg Ástráðsdóttir leikskólastjóri, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra, Kjartan Halldórsson fulltrúi kennara og Matthildur Vilhjálmsdóttir fulltrúi starfsfólks leikskólans.
1. Skólastefna Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Skólastjórar hafa unnið að skólastefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps út frá málþingi um skólamál sem haldið var 26. mars 2011. Þeir kynntu breytingar sem þeir gerðu út frá gildandi skólastefnu. Ákveðið var að senda drögin til skólaráða og samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar.
2. Siðareglur kennara og starfsfólks í Leikholti og Þjórsárskóla.
(Gunnar Oddviti mætti á fundinn, kl. 21:10)
Skólastjórar lögðu sameiginlegar siðareglur starfsfólks skólanna fram. Skólanefnd samþykkir.
3. Önnur mál:
-Staða starfsmannamála. Auglýst var eftir stöðu sérkennara, 2 umsóknir komu. Varðandi minnkandi starfshlutfall við skólann þá óskaði skólastjóri eftir því að kennarar gæfu sig fram um að minnka starfshlutfall. Enginn gaf sig fram og þá ákvað hún að minnka starfshlutfall við 2 kennara með mesta starfshlutfallið. Hún sagði þeim upp og bauð þeim nýja stöðu í minna hlutfalli. Annar kennarinn samþykkti strax en hinn hefur sagt upp störfum.
-Tekin fyrir fyrirspurn frá foreldri um starfsmannamál.
-Kjartan, fulltrúi kennara, telur að 80% staða sérkennara sé full rýmileg staða fyrir þá þörf sem er fyrir sérkennslu. Hann las upp bréf frá 2 kennurum sem eru ósáttar við uppsagnir kennara. Umræður um starfsmannamál.
-Bókun frá Láru: Ég hef vitneskju um að 2 starfsmenn skólans hafi sagt upp störfum vegna óánægju með samskipti við skólastjóra og þar að auki var 1 starfsmaður frá vinnu eina önn vegna hans. Ég lýsi yfir áhyggjum af þessu, þetta hefur slæm áhrif á skólann, starfsandann og orðspor skólans.
-Starfsmannamál í leikskólanum. Auglýst hefur verið eftir matráði/matreiðslumanni vegna þess að Hrafnhildur Magnúsdóttir lætur að störfum sökum aldurs.
-Næsti fundur skólanefndar / grunnskólamál verður 21. Júní kl. 10:00.
Fundi slitið kl. 23:00.




