Umhverfisnefnd 06. fundur 16.05.2011
Umhverfisnefndarfundur í Árnesi 16.05.2011
No. 6
Fundinn sátu:
Vilborg Ástráðsdóttir
Úlfhéðinn Sigmundsson
Sigþrúður Jónsdóttir
Hulda Þorláksdóttir
Formaður setti fund kl. 20:35
1. Búið er að kanna kostnað við að fá kurlara hjá Skógræktinni en athuga þarf fleiri aðila sem ræður við bæði stórar og smáar greinar.
2. Sveitarfélagið er í hálfgerðum vandræðum með grasið sem kemur af flötunum og íþróttavöllum sem og garðaúrgang og greinar. Farið var yfir þau svæði í nágrenninu sem gætu hugsanleg tekið við þessu lífræna efni.
3. Umhverfisnefnd vekur athygli á að aðkoma að Brautarholti er ekki aðlaðandi og margt sé þar ófrágengið og ýmislegt þarf að laga og fegra.
4. Umhverfisstefna sveitarfélagsins.
a. Nefndin skoði hvernig önnur sveitarfélög hafa unnið að þessu, t.d. Snæfellsnes og Djúpavogshreppur.
b. Umhverfisstefnan þarf að vera notendavæn.
c. Þjórsárskóli hefur staðið sig mjög vel en kanna þarf hverjir fleiri eru að gera góða hluti. Nefndin þarf að afla sér upplýsinga um umhverfisatferli annarra aðila innan sveitarfélagsins og kanna hvort fyrirtæki hafi mótað sér umhverfisstefnu.
5. Farið yfir fyrstu drög að reglum um veitingu umhverfisverðlauna sveitarfélagsins og áfram verður unnið í þeim fyrir næsta fund.
6. Nefndin óskar umhverfisnefnd Þjórsárskóla til hamingju með að vera valin Varðliðar umhverfisins en umhverfisráðherra veitti þau á degi umhverfisins sem var haldinn hátíðlegur þann 28. apríl s.l.
7. Vakin var athygli á því að í dag varði Friðþór Sófus Sigmundsson meistararitgerð sína við, Líf og umhverfisvísindadeild HÍ, um hnignum skóg- og kjarrlendis í Þjórsárdal 1587- 1938 og ástæður þess.
Fundi slitið kl. 22:30




