486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
14.04.2011

Leikskólamál 08. fundur 12.04.2011.

Leikskólamál 12. apríl 2011 kl. 20:30


Mættir eru: Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Helga Kolbeinsdóttir, Lára Bergljót Jónsdóttir, Vilborg Ástráðsdóttir leikskólastjóri, Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri og Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra.


1. Úrvinnsla úr málþingi um skólamál.
Málþingið var mjög gott og gagnlegt en þátttaka var mjög dræm. Skólastjórum falið að vinna í skólastefnunni, sameiginlegum áætlunum og öðrum sameiginlegum plöggum út frá punktum frá málþinginu. Tekið fyrir aftur á næsta fundi.


2. Leikskóladagatal 2011-2012.
Farið yfir skóladagatalið. Starfsdagarnir eru mikið samræmdir við starfsdaga skólans. Starfsdagarnir eru heilir, sem er vilji foreldra út frá könnun sem gerð var í vetur. Skóladagatal samþykkt með einni breytingu, þ.e. að sumarfrí ársins 2012 hefjist 25. júní.


3. Önnur mál.
Næsti fundur fimmtudaginn 26. maí 2011. Sameiginlegur fyrir leik- og grunnskóla.


Fundi slitið kl. 22:00

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar