486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
12.04.2011

Umhverfisnefnd 05. fundur 11.04.2011

 

Fundinn sátu:
Vilborg Ástráðsdóttir
Úlfhéðinn Sigmundsson
Sigþrúður Jónsdóttir

 

Formaður setti fund kl. 20:45


1. Skipulag hreinsunarátaks. Sveitarstjórn hefur falið umhverfisnefnd að skipuleggja hreinsunarátak í sveitarfélaginu.


Áhersluþættir:
• Að rusl verði hreinsað meðfram vegum í sveitarfélaginu og rusl fajrlægt af girðingum
• Að íbúar verði hvattir til að hreinsa til heima við íbúðarhús og útihús
Leiðir:
• Kanna kostnað við að fá gám heim á bæi
• Athuga hver verður tengiliður á milli íbúa og sveitarfélags.

 

2. Garðaúrgangur. Umhverfisnefnd leggur ríka áherslu á að það gróður sem kemur  af grasflötum í eigu sveitarfélagsins sé notað til uppgræðslu og landbóta. Einnig vill nefndin athugað hvort hægkvæmt sé að fá kurlara til að kurla trjágreinar er til falla.


3. Jarðgerðarnámskeið. Verður kannað nánar og stefnt að því að halda það í vor.


4. Önnur mál.


a. Umhverfisverðlaun verða afhent í ár. Rætt um að endurskoða áherslur og gera þær markvissari.


b. Nefndin óskar eftir að fá upplýsingar um hvernig verður staðið að merkja gönguleiðir í Þjórsárdal.


c. Umhverfisnefnd minnir sveitarstjórn á að fara varlega þegar stórar ákvarðanir er varða umhverfi og samfélag eru teknar.


 
Fundi slitið kl. 22:40

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar