Grunnskólamál 06. fundur 23.2.2011
Skólanefndarfundur nr. 6
Grunnskólamál
Þjórsárskóla fimmtudaginn 24.feb 2011 kl. 20:30
Mættir: Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Lára Bergljót Jónsdóttir, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Helga Kolbeinsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson sveitastjóri, Kjartan Ágústsson fulltrúi kennara, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri.
1. Skólaakstur næsta skólaár
Samningur við skólabílstjóra var gerður til þriggja skólaára og nú er það síðasta að líða. Skólanefnd lýsir yfir ánægju sinni með núverandi fyrirkomulag og starfandi bílstjóra. Einnig vill skólanefnd að núverandi kröfum gagnvart öryggi nemenda verði viðhaldið. Jafnframt skal gæta hagræðis í næstu samningum. Oddvita, formanni skólanefndar og skólastjóra er falið að funda með bílstjórum og fara yfir málin.
2. Málþing um skólamál sveitarfélagsins
Fyrirhugað er að halda málþing um skólamál í sveitarfélaginu þann 26. mars 2011 kl. 10-14. Skólastjórum falið að skipuleggja daginn.
3. Skóladagatal 2011-2012
Umræður um vetrarfrí, fulltrúi foreldra óskar eftir að gerð verði könnun varðandi vilja foreldra um vetrarfrí. Skólanefnd leggur til að samráð sé haft við Leikholt og Flúðaskóla við gerð dagatalsins.
4. Kennsla næsta skólaár
Umræður um kennslu næsta skólaárs.
5. Námskeið fyrir skólanefndir
Boðið er upp á námskeið fyrir skólanefnd og áheyrnarfulltrúa þann 18. apríl kl. 13-17:30 á Fræðslunetinu Selfossi. Skólanefnd hvetur fulltrúa og varafulltrúa að nýta sér þetta námskeið.
6. Bréf frá Sambandi sveitarfélaga um meðferð ágreiningsmála
Lagt til kynningar. Skólanefnd fagnar því að samband íslenskra sveitarfélaga gefi út leiðbeiningar um úrlausnir erfiðra ágreiningsmála sem upp koma í starfi grunnskólans.
7. Önnur mál
a. Olweus eineltisáætlun
Skólanefnd felur skólastjórum að finna tíma fyrir kynningarfund.
b. Skýrsla brunaeftirlits
Lögð fram. Smávægilegar athugasemdir eru gerðar sem brugðist verður við.
c. Tilkynning um dagsetningar samræmdra prófa haustið 2011
Þau verða 22. og 23. september.
d. Annað
• Helga talar um að hún hafi beðið um að fá fundargögnin send útprentuð. Það hefur ekki gengið eftir. Ákveðið var að þegar fundarboðið er sent út geta fulltrúar staðfest og beðið um að það verði prentað út fyrir þá.
• Fulltrúi kennara spurðist fyrir um þekkingu skólanefndarfólks á skólastarfi. Málin rædd.
• Trúnaðarmál.
• Fulltrúi foreldra spyr um sérkennslumál. Sérstaklega utanumhald. Utanumhaldið er sett í áætlun sem foreldrar skrifa undir. Skólastjóri telur sérkennsluna í góðum málum.
Fundi slitið kl. 23:40




