486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
15.02.2011

Umhvefisnefnd 4. fundur 14.02.2011

Þessi fundargerð verður lögð fram til staðfestingar á næsta hreppsnefndarfundi.

 

Umhverfisnefndarfundur í Árnesi 14.02.2011

No. 4

Fundinn sátu:


Vilborg Ástráðsdóttir
Stefanía Sigurðardóttir
Úlfhéðinn Sigmundsson
Björgvin Þór Harðarson
Sigþrúður Jónsdóttir

Formaður setti fund kl. 20:50


Í upphafi fundar var Atie Bakker í Skaftholti minnst fyrir óeigingjörn störf í þágu umhverfisverndar.


1.   Fundargerð síðasta fundar lesin. Fjallað um afdrif og framganga mála sem nefndin fjallar um og koma fram í fundargerðum.


2.    Lög um vatnsveitur. Íbúi hafði samband við formann og taldi að sveitarfélagið ætti að sjá fólki fyrir köldu  vatni en svo er ekki skv. í lögum um vatnsveitur.  Æskilegt er að sveitarfélagið geti leiðbeint fólki um þessi mál og vísað því áfram þar sem upplýsingar er að fá. Í kjölfar umræðna um vatnsveitur vill umhverfisnefnd spyrja hvort sveitarfélagið geri þá kröfu þegar skipulögð eru svæði til búsetu af einhverju tagi að aðgengi sé að nægilegu neysluvatni. 


3.    Fráveitusamþykkt Skeiða- og Gnúpverjahrepps, er búið að samþykkja af sveitarstjórn.


4.    Upplýsingar til íbúa um flokkun á sorpi.
Nú stendur til að laga gámasvæðið í Brautarholti fljótlega og verið er að smíða hlið fyrir bæði gámasvæðin. Þegar búið er að loka svæðunum kemur gámur fyrir hreint timbur. Athuga þarf hjá Íslenska gámafélaginu hvort ekki sé hagkvæmt að hafa gám fyrir raftæki hér, enda stendur það í samningi við það.


5.    Önnur mál


a. Í framhaldi af síðasta fundi umhverfisnefndar, þar sem nefndin hvatti íbúa til að farga lífrænum úrgangi á viðeigandi hátt til að ná niður kostnaði í framtíðinni, leggur nefndin það til við sveitarstjórn að sveitarfélagið bjóði íbúum upp á námsekið í moltugerð.


b. Fegrun og  hreinsun í sveitinni. Formaður leggur til að við stöndum fyrir hreinsunarátaki í sveitarfélaginu þegar vorar og nýtum ákvæði í samningi við Íslenska gámafélagið um að íbúar fái gám heim til sín einn í sólarhring.  Einnig er brýnt að rusl sé fjarlægt með vegum. Átakið standi í einn mánuð.


c. Sveitarfélagið standi fyrir því að gera tilboð í utanhússmálningu til að fegra ásýnd bæja.


Fundi slitið kl. 22:30

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar