Atvinnu, fjarskipta-og samgöngunefnd fundur nr. 04 13.01.2010
Fundargerð Atvinnu, fjarskipta og samgöngunefndar
4. fundur 13. jan. 2011 klukkan 20:00 í Brautarholti.
Mættir: Einar Bjarnason, Georg Kjartansson, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Jón Einar Valdimarsson, Sigrún Bjarnadóttir.
Einar Bjarnason ritaði fundargerð.
Farið yfir Erindisbréf nefndarinnar
Farið yfir erindisbréf engar athugasemdir gerðar nema nafnið mætti vera bæði styttra og /eða þjálla.
Ljósleiðaravæðing
Lýst ánægju með jákvæð viðbrögð sveitarstjórnar og fögnum því að málinu sé fylgt eftir. Viljum jafnramt að skoðað verðið hvort aðrar ljósleiðaraveitur geti og hafi áhuga og allir möguleikar skoðaðir þannig að tryggt sé að við séum að njóta bestu lausnar sem í boði er.
Ferðamannastaðurinn Skeiða og Gnúpverjahreppur.
Við erum með tvö tjaldstæði sem eru að okkar mati bæði í ákveðinni tilvistarkreppu.
Teljum að taka verði ákvörðun um hvað eigi að gera og hugsa til einhverrar framtíðar. Versta leiðin er núverandi leið þ.e. að gera ekki neitt. Betra að hætta eða gera þetta almennilega.
Ef það á að hafa tjaldstæði Þarf að hugsa þetta heildstætt því góð og vönduð tjaldstæði draga að fólk sem leitar eftir þjónustu og afþreyingu og mundi því geta skotið betri stoðum undir það sem er fyrir og búið til grundvöll fyrir meiri og fjölbreyttari starfsemi í tengslum við ferðamennsku.
Mætti gjarnan skoða að tengja þetta á einhvern hátt þeim miklu möguleikum sem eru í boði og ekki nýttir sem skyldi, tengdum Þjórsárdal.
Mikilvægt að nýta þjórsárstofu vel til upplýsingagjafar og styðja undir vaxtarsprota í ferðamennsku.
Hér er talsvert að ónýttum tækifærum sem hægt er að bjóða upp á svo sem gönguleiðir og áhugaverðar minjar t.d. veitumannvirki á Skeiðum.
Önnur mál.
Hvetjum til að hugað verði að skiptiplani við Sandlækjarholt.
Fundi slitið klukkan 21:00




