486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
04.02.2011

Leikskólamál 05. fundur 02.02.2011.

Skólanefndarfundur nr. 5 í Leikholti miðvikudaginn 2. feb 2011, kl. 20:20.


Leikskólamál

Mættir eru: Jón Vilmundarson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Lára Bergljót Jónsdóttir, Ingvar Hjálmarsson, Helga Kolbeinsdóttir, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra, Matthildur E. Vilhjálmsdóttir fulltrúi starfsfólks og Vilborg Ástráðsdóttir Leikskólastjóri.

 

1. Niðurstöður rafrænnar könnunar sem gerð var í lok nóvember.


-Sumarleyfi leikskólans. Lokun leikskólans vegna sumarleyfis verður í 5 vikur. Sumarleyfi hefst í byrjun júlí og endar eftir fyrstu vikuna í ágúst. Næsta ár er þá stefnt að því að hefja sumarleyfi síðustu vikuna í júní og út júlí.


-Starfsdagar leikskólans næsta skólaár. Stefnt er að því að hafa alla daga heila.

 

2. Samræmd eineltisáætlun í samstarfi við Þjórsárskóla.
-Leikskólastjóri leggur til að farið verði í vinnu að sameiginlegri eineltisáætlun fyrir skólana. Skólastjóri Þjórsárskóla lagði til að byrjað verði á því að gera samræmda eineltisáætlun hvað varðar starfsfólk. Skólanefnd leggur til að haldinn verði kynningarfundur á olweus fyrir starfsfólk og skólanefndir og leyta eftir samstarfi við fleiri skóla. Formaður skólanefndar mun fylgja þessu eftir.

 

3. Mál til kynningar:


-Næsti starfsdagur 16. febrúar, fyrirlestur frá sr. Eiríki um sorg og sorgarviðbrögð.


-Viðbragðsáætlun vegna inflúensu hefur verið uppfærð. Hún er aðgengileg á heimasíðu leikskólans.


-Rekstrarskoðun á leikvelli. Það er lögbundin árleg rekstrarskoðun, úttekt á öryggisþáttum leikvallar framkvæmd af löggiltum fagaðila. Nýji völlurinn hefur ekki verið tekinn út. Skólanefnd leggur til að þessi skoðun verði framkvæmd í vor, fyrir 1.júní 2011.


-Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur 4. febrúar. Þá verður leikskólinn með opið hús með vísindasmiðju í salnum.


-Skógarkubbar – samstarf við Grænna land á Flúðum. Hugmyndir um gerð á útileikföngum með litlum kostnaði.

 

4. Önnur mál:


-Skólanefnd lýsir yfir ánægju sinni með starfið í heild sinni.


-Brýnt er að fundargerðir séu settar á vef sveitarfélagsins eins fljótt og unt er.

Fundi slitið kl. 22:15.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar