Grunnskólamál 04. fundur 25.11. 2010
Skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps
4.fundur haldinn fimmtudaginn 25. nóv. 2010 í Þjórsárskóla kl. 20:30.
Mættir: Jón Vilmundarson, formaður, Helga Kolbeinsdóttir, Ingvar Hjálmarsson, Lára Bergljót Jónsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Dorothea Lubecki fulltrúi foreldra, Kjartan Ágústsson fulltrúi kennara og Gunnar Örn Marteinsson sveitastjóri.
1. Erindisbréf skólanefndar.
Drög að erindisbréfi skólanefndar lagt fyrir. Skólanefndin leggur til eftirfarandi viðbót: Heimilt er að boða fundi með rafrænum hætti og skulu fundir verða haldnir a.m.k. fjórum sinnum á ári fyrir hvort skólastig. Að öðru leiti eru drögin samþykkt.
2. Skyldur og ábyrgð skólanefndar.
Drög að handbók sem samband íslenskra sveitarfélaga lét útbúa um skyldur og ábyrgð skólanefnda lögð fram til kynningar. Skólanefnd mun nýta sér gátlistann í frekari vinnu á næsta ári. Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir námskeiði um ábyrgð og skyldur skólanefnda, stefnd er að því að nefndarfólk sitji slíkt námskeið sem fyrst.
3. Heilsueflandi skóli.
Ingibjörg María kynnti að Þjórsárskóli yrði heilsueflandi skóli. Margt í þessu átaki er nú þegar til staðar. Átakið verður kynnt þegar vinnan hefst. Skólanefndin lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið.
4. Skýrsla vinnueftirlits.
Vinnueftirlitið kom þann 8. okt 2010 og gerði nokkrar athugasemdir. Ingibjörg María lagði fram úrbótaskýrslu sem er dagsett 18. nóv 2010.
5. Fjárhagsmál staðan í dag og næsta fjárhagsár.
Gunnar fór yfir fjárhagsáætlun þessa árs og stöðuna. Ingibjörg María lagði fram punkta vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2011. Skólanefnd minnir á að tryggja þarf öryggi barna við innganginn í mötuneyti.
6. Landgræðsluverðlaun skólans – kynning á fundinum.
Þjórsárskóli fékk landgræðsluverðlaunin fyrstur skóla. Skólanefndin lýsir yfir ánægju sinni og óskar skólanum, starfsfólki og nemendum, til hamingju með þau.
7. Önnur mál.
-Ingibjörg María sagði frá því að hún færði félagsmiðstöðinni Zero 2 fartölvur sem skólinn er hættur að nota. Þær koma sér mjög vel þar, þar sem félagsmiðstöðin hafði mjög lélegar tölvur fyrir.
-Fyrstu niðurstöður eru komnar úr samræmdum prófum. Það er hægt að nálgast þær inn á námsmatsstofnun (namsmat.is).
-Rætt um að halda málþing um skólastefnu sveitarfélagsins upp úr áramótum líkt og gert var 2007. Mikil ánægja var með síðasta málþing.
-Rætt um hvernig eigi að fara með trúnaðarmál almennt. Lagt er til að trúnaðarmálum verði vísað til umsagnar á Skólaskrifstofu Suðurlands áður en þau koma til umfjöllunar skólanefndar og/eða sveitastjórnar.
-Rætt um sérkennslumál.
Fundi slitið kl. 23:15.




