Atvinnu, fjarskipta-og samgöngunefnd 3. fundur
Fundargerð 3. (kynning Fjarska) 02. nóv. 2010 klukkan 20:00 í Árnesi.
Mættir: Einar Bjarnason, Georg Kjartansson, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Jón Einar Valdimarsson.
Frá Fjarska mættu. Njörður Tómasson framkvæmdastjóri og Benedikt S. Haraldsson verkefnastjóri ljósleiðaralagna.
Njörður og Benedikt fóru yfir grófhönnun á ljósleiðaraneti sem næði á alla bæi sveitarfélagsins. Þessi hönnun var unnin að frumkvæði sveitarstjórnar.
Bæði var farið yfir tæknilega úrvinnslu og tekin saman kostnaður og aðeins tæpt á möguleikum til að vinna þetta á sem hagkvæmastan hátt fyrir sveitarfélagið.
Þetta mundi án vafa færa okkur í fremstu röð varðandi tengimöguleika og notkun á rafrænum miðlum við vinnu, nám og leik gegnum internet, fjarskipti og alla afþreyingarmiðla sem í boði eru í bestu gæðum.
Eftir þessa kynningu er það mat nefndarmanna að þetta sé mjög spennandi verkefni til hagsbóta fyrir sveitarfélagið allt og íbúa þess. Bæði í núinu og til framtíðar.
• Þetta mundi bæta lífsgæði allra íbúa sveitarfélagsins.
• Byggja undir og auka möguleika hverskonar atvinnustarfsemi sem þarf á öruggum og hagkvæmum internettenginum að halda.
• Öllum líkindum auka áhuga fólks á að búa hér, (gefur möguleika á að stunda sína vinnu í fjarvinnslu og hefur alla sömu möguleika á afþreyingu eins og best gerist.)
• Tryggir að allir íbúar geti stundað vinnu og nám í fjarvinnslu í bestu mögulegu gæðum.
Nefndin mælir með að þetta sé unnið hratt og vel áfram og kannað til hlýtar hvort að ekki sé möguleiki að koma þessu verkefni lengra.
Mælum jafnframt með nokkuð ýtarlegri kynningu á þessu verkefni fyrir alla íbúa sveitarfélagsins sem tryggir að umræðan haldist upplýst og með réttum forsendum.
Fundi slitið klukkan 22:00.




