486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
16.12.2010

Umhverfisnefnd 03. fundur 22.11.2010

Umhverfisnefndarfundur í Árnesi  22.11. 2010


Fundinn sátu:
Vilborg Ástráðsdóttir
Stefanía Sigurðardóttir
Úlfhéðinn Sigmundsson
Björgvin Þór Harðarson
Sigþrúður Jónsdóttir


Formaður setti fund kl. 20:40

 

1. Staðan í stækkun friðlands í Þjórsárverum.
Jón Vilmundarson mætti á fund en hann á sæti í nefnd um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum. Kveðið er á um stækkun friðlandsins í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Jón gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar.  Sagði hann að mestur tími hafi farið í gerð friðlýsingarskilmála, en drög af þeim afhenti Jón nefndarmönnum. Góð sátt um þá í nefndinni. Ekki hefur náðst samkomulag um hversu langt til suðurs friðlandið nær. Það sem snýr að sveitarfélaginu er umferð um friðlandið  og verða nokkuð hertari reglur.
Umhverfisnefnd beinir þeim tilmælum til sveitarstjórnar að ferðamenn séu markvisst upplýstir um þær reglur sem gilda í friðlandinu í Þjórsárverum. Inngönguleiðir inn í friðlandið á afréttinum verði merktar, gerður verði  einfaldur  bæklingur um svæðið og reglur sem þar gilda og hengdar upp umgengisreglur í afréttarhúsin.


2. Upplýsingar um sorp og sorpflokkun til íbúa sveitarfélagsins.
Framlagðar voru upplýsingar um magn og flokkun á sorpi sem til fellur í sveitinni. Mikill kostnaður er vegna sorpsins. Kostnaður við losun brúnu tunnunnar er u.þ.b. 25% af kostnaði við þriggja tunnu kerfið, eða um 1.8 milljónir kr. á ári. Vill umhverfisnefnd hvetja íbúa til að farga lífrænum úrgangi á viðeigandi hátt til að ná niður kostnaði í framtíðinni. Einnig má benda fólki á að kaupa minna af drasli sem það svo hendir og safnast upp á ruslahaugum heimsins.
Nefndin ítrekar það við sveitarstjórn, sem fram kom í síðustu fundargerð umhverfisnefndar, að  setja inn í fjárhagsáætlun merkingu og endurnýjun á gámasvæðum.


Nefndin óskar Þjórsárskóla innilega til hamingju með afhendingu Grænfánans og Landgræðsluverðlaunin, en er það í fyrsta skipti sem skóli fær þau verðlaun.

Fundi slitið kl. 23.00

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar