Menningar, æ,v,-og jafnréttisnefnd 4. fundur
Menningar, æskulýðs, velferðar og jafnréttisnefndar
Haldinn 10.11.2010 kl 20:30 í Árnesi
Á fundinn mætt nefndarfólk:
Sigrún Guðlaugsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir, Þóra Gylfadóttir, Meike Witt og Daði Viðar Loftsson.
Auk þeirra: Gunnar Örn Marteinsson Oddviti . Hann vék af fundi 21:40.
1. Erindisbréf
Erindisbréf var sent til nefndar fyrir fund til umsagnar. Oddviti kynnir innihald bréfsins og önnur mál.
Nefndin gerir eina athugasemd við erindisbréfið.
2.kafli 5.gr.
Í stað Fjalla um æskulýðsmál og gera .....kemur Fjalla um æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamál og gera.....
2. Kynning nefndar
Rætt um að nefndin komi sér á framfæri við þá sem málaflokkarnir falla undir, eins og félag eldri borgar, félagsmiðstöð unglinga, ungmennafélaga ofl. Stefnt að þessari kynningu upp úr áramótum.
3. Menningarkvöld
Rætt um skipulag menningarkvölds í bókasafninu sem verður 18. nóv. n.k.
4. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fundi slitið kl 22:30




