Grunnskólamál 03. fundur 07.10.2010
Skólanefndarfundur nr. 3 fimmtudaginn 7. okt. í Þjórsárskóla kl. 20:30.
Grunnskólamál.
Mættir: Jón Vilmundarson, formaður, Helga Kolbeinsdóttir, Ingvar Hjálmarsson, Lára Bergljót Jónsdóttir, Halla Sigga Bjarnadóttir, Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Kjartan Ágústsson fulltrúi kennara.
Í upphafi fundar var Rutar Guðmundsdóttur, fyrrum skólastjóra, minnst.
1. Skólanámskrá, almennur hluti. Ingibjörg fór yfir helstu breytingar. Umræður um almenna hlutann. Hann er samþykktur. Bekkjarnámskráin verður sett inn á heimasíðu skólans á næstunni.
2. Starfsáætlun skólans 2010-2011. Ingibjörg fór yfir hana. Rætt um hana. Umræða um hjóladag, hvort hann eigi heima á haustin eða vorin. Hvort hann eigi að vera yfir höfuð. Umræður um þemadaga.
3. Skýrsla um samstarf leik- og grunnskóla. Skólanefnd lýsir yfir ánægju sinni með þetta samstarf.
4. Önnur mál. Skýrsla frá skólaráði lögð fram til staðfestingar. Hún var samþykkt. Fylgiskjal með uppsögn Eyglóar Jósepsdóttur lagt fram. Jóhanna spurði um nýju leiktækin sem voru gerð á dögunum, það stendur til að taka þau út varðandi öryggismál af vinnuverndareftirlitinu. Ingibjörg sagði frá því að heilbrigðiseftirlitið hefði komið og gert engar athugasemdir, skólanefnd fagnar því.
Fundi slitið kl. 22:30.




