Menningar, æ,v-og jafnréttisnefnd 2. fundur.
Fundargerð_02
Menningar, æskulýðs, velferðar og jafnréttisnefndar.
Haldinn 16.09.2010 kl 20:30 í Bókasafni Brautarholti
Á fundinn mætt nefndarfólk:
Sigrún Guðlaugsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir, Þóra Gylfadóttir, Meike Witt og Daði Viðar Loftsson.
Auk þeirra: Þorbjörg Hj. Halldórsdóttir bókasafnsvörður
1. Erindisbréf.
Erindisbréf liggur ekki fyrir en oddviti vinnur í málinu.
2. Starfsemi Zero.
Starfsemi Zero rædd og þátttaka sveitarfélagsins í því. Mikil ánægja er innan nefndarinnar með þessa starfsemi.
3. Erindi frá starfsmanni bókasafns.
ÞHH leggur fram erindi um lagfæringar á húsnæði til að mynda vantar bókalúgu til skila inn bókum, lýsingu innan sem utan safns og lagfæringar á vatnsrennum. Nefndin skoðaði húsnæðið, og tekur undir athugasemdir. Auk þess er brýnt að lagfæra leka á þakglugga, mikil klóaklykt er í þvottahúsi og vöntun er á hillum undir bækur. Formanni falið að fylgja eftir endurbótum á húsnæðinu.
4. Yfirlit um útlán.
ÞHH lagði fram yfirlit um útlán og fjölda skráðra bóka í Gegni.
Fjöldi útlána frá áramótum eru 802 bækur.
Fjöldi skráðra bóka, tímarita, hljóðbóka og myndbanda er 5267
5. Nýting bókasafnshúsnæðis.
Rætt um mögulega aukna nýtingu hússins. Nefndin hefur áhuga á að ýta undir og standa fyrir viðburðum. Ýmsar hugmyndir komu fram.
6. Starfsmaður bókasafns.
Nefndin telur brýnt að gera starfslýsingu fyrir starfsmann bókasafns.
Fundi slitið kl 23:00.




