486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
04.11.2010

Atvinnu, fjarskipta-og samgöngunefnd 2. fundur 26.10.2010

2. fundur  26. okt 2010 klukkan 20:00 í Árnesi


Mættir: Einar Bjarnason, Sigrún Bjarnadóttir, Georg Ólafsson, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Jón Einar Valdimarsson
Einar Bjarnason ritaði fundargerð.


1. Umsókn í atvinnuppbygginarsjóð.
Tekin fyrir umsókn frá Híalín. Rætt um kostnað og hvernig eigið framlag er skráð. Samþykkt að mæla með styrk upp á 200.000 og málinu vísað til hreppsnefndar til frekari afgreiðslu en að öðru leyti vísað til reglna um úthlutunarreglur atvinnuuppbyggingarsjóðs.


2. Fjarskiptamál
Talað um hugsanlega ljósleiðarvæðingu hreppsins
Njörður hjá Fjarska forfallaðist en formanni falið að fá Guðmund frá Fjarska eða hann í næstu viku til að kynna hugmyndir þeirra betur.
Lýst yfir almennum yfir áhuga á að skoða þetta vel og margir  kostir týndir til.


3. Stuðnings og styrkjakerfi
Farið yfir þau úrræði sem eru til staðar hér á Suðurlandi til að ná í styrki og aðstoð til hverskonar viðburða og uppbyggingar.
Mikilvægt að nefndarmenn kynni sér þetta vel og útdeili þekkingunni sem mest og séu vakandi yfir þeim tækifærum sem þarna bjóðast.
Formaður sendi lista yfir þá tengla sem helst í boði eru á alla nefndarmenn.
Jafnframt að setja þá í fréttabréfið.


4. Samgöngur
Hlutverk umferðakeilna í Árnesi og Brautarholti sem hraðahindranir umdeilanlegar  Vegagerðin lagi skiptiplanið á Sandlækjarholti.


5. Annað
Rætt um að hér væri lítið framboð á húsnæði til  atvinnustarfsemi.
Rætt um hvaða leiðir væru bestar í að bæta þar um  og/eða hvort þörf sé á því.  Vöntun á betri kynningu á Matarsmiðjunni.

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar