486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
21.10.2010

Umhverfisnefnd 01. fundur 30.08.2010

Fyrsti fundur umhverfisnefndar Skeiða-og Gnúpverjahrepps  2010 til 2014 haldinn í Árnesi 30. ágúst 2010.


Mættir eru Björgvin Þór Harðarson, Páll Árnason, Vilborg María Ástráðsdóttir, Sigþrúður Jónsdóttir, og Gunnar Örn Marteinsson oddviti sem ritaði fundargerð. Úlfhéðinn boðaði forföll.


1. Gunnar Örn setti fundinn og stjórnaði kosningu á formanni nefndarinnar sem var kosin Vilborg María Ástráðsdóttir með þremur atkvæðum, Sigþrúður Jónsdóttir fékk eitt atkvæði, Sigþrúður Jónsdóttir var kosin ritari, Úlfhéðinn Sigurmundsson var kosinn varaformaður.


2. Rætt um gámasvæðin, nefndin er sammála að bæta þurfi merkingar á gámasvæðum og beinir því til oddvita að ýta á málið. Jafnframt  ítrekar nefndin þörf á að koma framtíðarskipulagi á gámasvæðin.


3. Nefndin er sammála um að auka þurfi upplýsingaflæði frá nefndinni til íbúa og sumarhúsaeigenda og nýta til þess heimasíðu sveitarfélagsins.


4. Rætt um verkefni sem nefndin þarf að fást við á næstu árum.


5. Farið yfir reglur um veitingu umhverfisverðlauna og með hvaða hætti sé rétt að veita þau svo verðlaunin skili sem bestum árangri.


6. Næsti fundur áætlaður 11. október 2010.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar