Atvinnu, fjarskipta- og samgöngunefnd 01. fundur
Fyrsti fundur atvinnu, fjarskipta, og samgöngunefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2010 til 2014 haldinn í Árnesi 27. ágúst 2010.
Mættir eru Einar Bjarnason, Georg Kjartansson, Sigrún Bjarnadóttir, Jón Einar Valdimarsson, Jónas Yngvi Ásgrímsson og Gunnar Örn Marteinsson oddviti sem ritaði fundargerð.
1. Gunnar Örn setti fundinn og stjórnaði kosningu á formanni nefndarinnar sem var kosinn Einar Bjarnason.
2. Rætt um hlutverk nefndarinnar og erindisbréf.
3. Farið yfir stöðu fjarskiptamála og stöðu þeirra í sveitarfélaginu, auk annarra mála sem koma til með að heyra undir nefndina.
4. Farið yfir samþykktir og úthlutunarreglur fyrir Atvinnuuppbyggingarsjóðs Skeiða-og Gnúpverjahrepps.
5. Nefndin skorar á Landsvirkjun að opna á ný sundlaugina í Þjórsárdal og skorar á sveitarstjórn að ræða málið við Landsvirkjun.
6. Rætt um skiptiplan fyrir skólabörn og fl á Sandlækjarholti, nefndin telur nauðsynlegt að gera úrbætur í þeim málum.
7. Ákveðið að nefndin hittist einu sinni í mánuð. Ákveðið að hittast næst síðasta fimmtudag í mánuði.
8. Fundi slitið kl 14.20




